2008-10-23 13:58:15 CEST

2008-10-23 13:59:15 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
SPRON Verðbréf hf. - Fyrirtækjafréttir

SPRON hefur mætt óskum Seðlabanka Íslands að fullu


Í kjölfar beiðni Seðlabanka Íslands um auknar tryggingar vegna óvarinna
verðbréfa útgefnum af viðskiptabönkunum þremur sendi SPRON frá sér tilkynningu
þar sem fram kemur að bankinn hafi átt í takmörkuðum endurhverfum viðskiptum
með umrædd verðbréf og að gert hafi verið ráð fyrir því að reiða þyrfti fram
auknar tryggingar. Að gefnu tilefni vill stjórn SPRON koma því á framfæri
að SPRON hefur nú mætt óskum Seðlabankans að fullu. 

Frekari upplýsingar veitir Ósvaldur Knudsen í síma 550 1223.