2012-06-27 17:11:56 CEST

2012-06-27 17:12:50 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Íslandsbanki hf. - Fyrirtækjafréttir

Islandsbanki hf. : Endurskipulagning Íslandsbanka í samræmi við reglur EES


ESA,   Eftirlitsstofnun   EFTA,   hefur  komist  að  þeirri  niðurstöðu  að  þær
ráðstafanirnar  sem  gripið  var  til  við stofnun Íslandsbanka haustið 2008 séu
samrýmanlegar  ríkisstyrkjareglum  EES-samningsins.  Íslandsbanki  er fyrstur af
viðskiptabönkunum  þremur  til  að fá  samþykki ESA  fyrir stofnun  og starfsemi
bankans.   Samþykkið  er  fengið  í  ljósi  þess  að  bankinn  hefur sýnt fram á
rekstrarhæfi  til  langs  tíma;  að  kostnaður  við  endurskipulagningu skiptist
hæfilega  milli eigenda bankans, bankans sjálfs  og ríkisins og að ríkisaðstoðin
takmarkist við það sem nauðsynlegt er; og að fullnægjandi ráðstafanir séu gerðar
til að draga úr röskun á samkeppni.

Í  niðurstöðunni kemur fram að Íslandsbanki hafi tekist á við brotalamir forvera
síns  og  búi  nú  við  sterkt  eiginfjárhlutfall.  Þá  hafi bankinn náð árangri
varðandi  endurskipulagningu  lána  skuldsettra  viðskiptavina  sinna.  Á fyrsta
ársfjórðungi  þessa  árs  höfðu  um  18.200 einstaklingar  og um 3.000 fyrirtæki
fengið  afskriftir, eftirgjafir eða leiðréttingar  á skuldum frá stofnun bankans
sem nemur um 370 milljörðum króna.

ESA  tekur einnig tillit til þess að  margar umbætur hafa verið gerðar á löggjöf
um  fjármálastarfsemi frá  haustinu 2008. Þessar  breytingar hafi,  að mati ESA,
styrkt  regluverk um  fjármálastarfsemi á  Íslandi og  þar með  aukið á öryggi í
rekstri  fjármálafyrirtækja. Þá telur ESA að kröfu um nægjanlegt framlag eigenda
og  fjárfesta sé mætt  og bót sé  ráðin á freistnivanda  þar sem fyrrum eigendur
Glitnis  hafi  glatað  hlutafjáreign  sinni  og lánadrottnar bankans hafi einnig
þurft að sæta miklu tapi.

Íslandsbanki   skuldbindur  sig  til  að  halda  áfram  sölu  á  eignarhlutum  í
fyrirtækjum  enda er slíkt í takt við  stefnu bankans. Þá mun Íslandsbanki veita
upplýsingar á vefsíðu sinni um hvernig skipta megi um viðskiptabanka og auðvelda
þannig   slíkt  ferli  fyrir  þá  viðskiptavini  sem  þess  óska.  Ennfremur  er
Íslandsbanka,  í tiltekin tíma,  óheimilt að kaupa  aðrar fjármálastofnanir nema
með samþykki ESA.


Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka:"Það  er mikilvægt að þessi  áfangi sé nú í  höfn og Íslandsbanki þar með fyrsti
viðskiptabankinn  hér á  landi til  að fá  samþykki ESA  fyrir þeim aðgerðum sem
gripið var til haustið 2008. Mikil áhersla hefur verið lögð á að styrkja innviði
bankans  frá  stofnun  hans  og  hefur  eitt  af lykilverkefnum bankans snúið að
úrbótum í þeim efnum. Þessi niðurstaða staðfestir að rekstur bankans er á réttri
leið og að miklum árangri hefur verið náð í endurskipulagningu bankans á síðustu
tæpum fjórum árum."

[HUG#1622465]