|
|||
2008-01-22 11:18:39 CET 2008-01-22 11:18:39 CET REGULATED INFORMATION Seðlabanki Íslands - Fyrirtækjafréttir- Tilkynning um regluleg viðskipti við Seðlabanka ÍslandsÍ samræmi við reglur, nr. 35 frá 17. janúar 2008, um viðskipti fjármálafyrirtækja við Seðlabanka Íslands býður Seðlabankinn miðvikudaginn 23. janúar 2008, kl. 11 f.h., þeim lánastofnunum sem átt geta viðskipti við bankann, lán til 7 daga gegn veði í verðbréfum sem Seðlabankinn metur hæf til tryggingar. Lánin bjóðast á föstum vöxtum, 13,75 %. Beiðni um lán þarf að berast alþjóða- og markaðssviði Seðlabanka Íslands, Kalkofnsvegi 1, Reykjavík, fyrir kl. 11:00 miðvikudaginn 23. janúar 2008. Hægt er að senda inn beiðni með símbréfi á nr. 569 9604, ef það er staðfest fyrirfram með símtali við alþjóða- og markaðssvið Seðlabankans (s. 569 9670/71). Um framkvæmd og frágang viðskipta vísast að öðru leyti til reglna um viðskipti lánastofnana við Seðlabanka Íslands. Tilkynnt verður um heildarfjárhæð viðskipta kl. 13:00 miðvikudaginn 23. janúar 2008. Seðlabanki Íslands býður einnig lánastofnunum innstæðubréf til 7 daga miðvikudaginn 23. janúar 2008 kl. 14:30 e.h. Hægt er að senda inn beiðni með símbréfi á nr. 569- 9604, ef það er staðfest fyrirfram með símtali við alþjóða- og markaðssvið Seðlabankans (s. 569 9670/671). Vextir innstæðubréfa eru 13,65%. Heildarfjárhæð innstæðubréfa verður tilkynnt kl. 15:00 miðvikudaginn 23. janúar 2008. SEÐLABANKI ÍSLANDS |
|||
|