|
|||
2013-10-11 13:45:00 CEST 2013-10-11 13:45:01 CEST REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirNiðurstaða útboðs ríkisvíxla RIKV 14 0115 og RIKV 14 0415Útboð á ríkisvíxlum í flokkum RIKV 14 0115 og RIKV 14 0415 með tilboðsfyrirkomulagi fór fram hjá Lánamálum ríkisins kl. 11:00 í dag. Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð buðust bjóðendum á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið. Vaxtaprósenta er reiknuð út miðað við flata vexti og dagar taldir sem raundagar miðað við 360 daga ár (Actual/360). Helstu niðurstöður útboðsins eru þessar: RIKV 14 0115: Alls bárust 9 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 10.450 m.kr. að nafnverði. Tilboðum var tekið fyrir 10.000 m.kr. að nafnverði á verðinu 99,091 (flatir vextir 3,59%). RIKV 14 0415: Alls bárust 10 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 3.930 m.kr. að nafnverði. Tilboðum var tekið fyrir 3.580 m.kr. að nafnverði á verðinu 98,120 (flatir vextir 3,79%). |
|||
|