2014-05-06 12:08:02 CEST

2014-05-06 12:09:02 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Íslandssjóðir hf. - Fyrirtækjafréttir

Frestun viðskipta með sjóði Íslandssjóða


Íslandssjóðir hf. tilkynna hér með að stjórn félagsins tók þá ákvörðun kl.
10:00 í dag að fresta viðskiptum með hlutdeildarskírteini í þeim sjóðum
Íslandssjóða sem eiga skuldabréf útgefin af Íbúðalánasjóði. 

Er þessi ákvörðun tekin í ljósi ákvörðunar Fjármálaeftirlitsins að stöðva
viðskipti með skuldabréf útgefin af  Íbúðalánasjóði. 


Sjóðirnir sem um ræðir eru:


Löng ríkisskuldabréf - Sjóður 7

Ríkisskuldabréf - Sjóður 5

Ríkissafn

Fókus - Vextir

Skuldabréfasafn

Eignasafn

Eignasafn - Ríki og sjóðir