|
|||
2008-11-21 17:34:12 CET 2008-11-21 17:35:20 CET REGULATED INFORMATION Orkuveita Reykjavíkur - ÁrshlutareikningarÁrshlutauppgjör Orkuveitu Reykjavíkur eftir fyrstu 9 mánuði 2008Rekstur Orkuveitu Reykjavíkur var með 39.588 milljóna króna halla fyrstu níu mánuði ársins 2008 samkvæmt árshlutauppgjöri, sem samþykkt var af stjórn fyrirtækisins í dag. Skýrist þessi niðurstaða alfarið af 63,7% gengisfalli íslensku krónunnar. Rekstrarafkoma fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta, EBITDA, var jákvæð um 8,2 milljarða króna og hækkaði um 11,9% frá sama tímabili árið 2007. Fyrirtækið jók raforkusölu sína í erlendri mynt verulega á þriðja ársfjórðungi. Rekstur Orkuveitu Reykjavíkur var með 39.588 milljóna króna halla fyrstu níu mánuði ársins 2008 samkvæmt árshlutauppgjöri, sem samþykkt var af stjórn fyrirtækisins í dag. Skýrist þessi niðurstaða alfarið af 63,7% gengisfalli íslensku krónunnar. Rekstrarafkoma fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta, EBITDA, var jákvæð um 8,2 milljarða króna og hækkaði um 11,9% frá sama tímabili árið 2007. Fyrirtækið jók raforkusölu sína í erlendri mynt verulega á þriðja ársfjórðungi. Helstu niðurstöður 1. janúar - 30. september 2008 Rekstur Orkuveitu Reykjavíkur var með 39.588 milljóna króna halla á fyrstu níu mánuðum ársins samanborið við 6.371 milljóna króna hagnað á sama tímabili árið áður. Rekstrartekjur fyrstu níu mánuði ársins námu 16.816 milljónum króna en voru 15.414 milljónir króna á sama tímabili árið áður. Hagnaður fyrirtækisins fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta, EBITDA, var 8.183 milljónir króna samanborið við 7.310 milljónir króna á sama tímabili árið áður. Fjármagnsliðir voru neikvæðir um 50.704 milljónir króna á tímabilinu, en voru jákvæðir um 4.670 milljónir króna á sama tímabili árið 2007. Heildareignir þann 30. september 2008 voru 231.289 milljónir króna en voru 191.491 milljón króna í árslok 2007. Eigið fé þann 30. september 2008 var 48.218 milljónir króna en var 88.988 milljónir króna í árslok árið 2007. Heildarskuldir fyrirtækisins þann 30. september 2008 voru 183.071 milljónir króna samanborið við 102.503 milljónir króna í árslok 2007. Eiginfjárhlutfall var 20,8% þann 30. september 2008 en var 46,5% í árslok 2007. Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld voru neikvæð um 50,7 milljarða króna samanborið við 4,7 milljarða króna hagnað fyrir sama tímabil árið 2007. Gengistap nam 63,3 milljörðum króna á tímabilinu en gangvirðisbreytingar innbyggðra afleiða í raforkusölusamningum skiluðu 16,8 milljarða króna hagnaði á sama tíma. Ýmis mál Í maí síðastliðnum var samþykkt breyting á lögum um tekjuskatt sem fól í sér lækkun á tekjuskattshlutfalli úr 26% í 23,5% og öðlaðist þessi lagabreyting gildi frá og með 1. janúar 2008. Áhrif lækkaðs skatthlutfalls í upphafi árs nemur 456 milljónum króna og er lækkunin tekjufærð í rekstrarreikningi á tímabilinu. Alþingi samþykkti á vorþingi breytingar á ýmsum lögum á orkusviði með gildistöku 1. júlí 2009. Þessar breytingar fela það meðal annars í sér að skipta þarf fyrirtækinu upp þannig að sérleyfisstarfsemi og samkeppnisstarfsemi sé rekin í aðskildum fyrirtækjum. Vinna að uppskiptingunni stendur yfir. Árshlutareikningurinn er gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla. Horfur Miklar breytingar hafa orðið á íslensku fjármálaumhverfi eftir fall íslensku bankanna í byrjun október sem hefur leitt til erfiðara aðgengis íslenskra fyrirtækja að fjármagni. Þrátt fyrir það er rekstur Orkuveitu Reykjavíkur traustur og lausafjárstaða sterk. Fjárfestingaáform næstu mánaða munu taka mið af aðgengi fyrirtækisins að lánsfé til fjárfestinga og þeim lánskjörum sem í boði verða. Nánari upplýsingar veitir Hjörleifur B. Kvaran, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur, í síma 516-6000. Orkuveita Reykjavíkur - árshlutauppgjör Allar tölur eru í milljónum kr. Rekstrarreikningur 1.1-30.9. 2008 1.1.-30.9.2007 Rekstrartekjur 16.816 15.414 Rekstrargjöld (8.634) (8.104) Rekstrarhagn. f. afskr. (EBIDTA) 8.183 7.310 Afskriftir (4.990) (4.151) Fjármunatekjur og (fjármagnsgjöld) (50.704) 4.670 Áhrif hlutdeildarfélaga 44 0 (Tap) hagnaður fyrir skatta (47.468) 7.829 Tekjuskattur 7.880 (1.458) (Tap) hagnaður tímabilsins (39.588) 6.371 Skipting (taps) hagnaðar Eigendur móðurfyrirtækisins (39.536) 6.368 Hlutdeild minnihluta (52) 3 (Tap) hagnaður tímabilsins (39.588) 6.371 Handbært fé frá rekstri 4.430 5.345 Efnahagsreikningur 30.9.2008 31.12.2007 Fastafjármunir 221.171 183.097 Veltufjármunir 10.118 8.394 Eignir 231.289 191.491 Eigið fé 48.218 88.988 Langtímaskuldir og skuldbindingar 171.881 93.205 Skammtímaskuldir 11.191 9.298 Eigið fé og skuldir 231.289 191.491 Kennitölur Veltufjárhlutfall 0,90 0,90 Eiginfjárhlutfall 20,8% 46,5% |
|||
|