2011-05-31 15:21:09 CEST

2011-05-31 15:22:10 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
HS Orka hf - Fyrirtækjafréttir

CORRECTION: Magma Sweden selur 25% hlut í HS Orku til Jarðvarma slhf. og kaupir 1,5% hlut í HS Orku hf. af íslenskum sveitarfélögum.


HS Orka hf. tilkynnir sölu Magma Sweden á 25% hlut í HS Orku hf. til Jarðvarma
slhf. sem er í eigu 14 íslenskra lífeyrissjóða. Áður hafði verið getið um
mögulega samninga á milli aðila þann 18. apríl 2011 og nú hefur verið skrifað
undir samninga um kaupin. Samkvæmt samningi mun Magma Sweden selja 25% hlut af
98,5% hlut sínum í HS Orku til Jarðvarma slhf. fyrir 8,06 milljarða ISK (u.þ.b.
69,8 milljónir USD). Gert er ráð fyrir að viðskiptunum verði lokið fyrir 2.
júní 2011. 

Saga Fjárfestingarbanki var ráðgjafi Magma Sweden við samningagerð og Arctica
Finance var ráðgjafi kaupanda. 

Magma Sweden hefur einnig skrifað undir samning við fjögur sveitarfélög um kaup
á hlutum í HS Orku fyrir 475 milljónir ISK (u.þ.b. 4,1 milljónir USD). Þeim
viðskiptum mun ljúka fyrir 9. júní 2011. 

Þegar viðskiptum þessum verður lokið mun Magma Sweden eiga 75% hlut í HS Orku
hf og 25% verða í eigu 14 íslenskra lífeyrissjóða í gegnum félag þeirra
Jarðvarma. 

Jarðvarmi mun halda kauprétti til kaupa á frekari hlutum í félaginu til 10.
febrúar 2012. Verði þeir kaupréttir nýttir getur Jarðvarmi aukið hlut sinn um
8,4% fyrir 4,7 milljarða ISK og verður hlutur þeirra í HS Orku þá 33,4%. Samið
hefur verið um minnihlutavernd Jarðvarma er varðar stærri ákvarðanir á vegum
félagsins og skipan fulltrúa þeirra í stjórn, svo framarlega sem Jarðvarmi
heldur á a.m.k. 22,5% hlut í HS Orku.