|
|||
2008-05-27 16:49:32 CEST 2008-05-27 16:50:35 CEST REGULATED INFORMATION Straumur-Burðarás Fjárfestingabanki hf. - FyrirtækjafréttirStraumur fjármagnar 395 milljónir evraStraumur-Burðarás fjárfestingabanki hf. hefur nýverið gengið frá fjármögnun samtals að fjárhæð 395 milljónir evra. Annars vegar er um að ræða 180 milljóna evra sambankalán sem skrifað var undir í dag, 27. maí 2008. Það er í tveimur hlutum; 70 milljónir evra til eins árs með 110 punkta álagi á Euribor vexti og 110 milljónir evra til þriggja ára með 180 punkta álagi á Euribor vexti. Umsjónarbankar lánsins voru Bayern LB, Commerzbank, HSH Nordbank og RZB en alls tóku tíu bankar í fimm löndum þátt í láninu. Hins vegar er um að ræða tvíhliða lánasamninga við nokkra aðila, samtals að fjárhæð 215 milljónir evra, og er lánstíminn eitt til fimm ár. Samkvæmt áætlunum Straums dugir lausafé bankans til að fjármagna rekstur hans fram á síðari hluta næsta árs. Nánari upplýsingar veitir: Ólafur Teitur Guðnason fjölmiðlafulltrúi olafur.gudnason@straumur.net s. 8586778 |
|||
|