2013-04-30 12:22:33 CEST

2013-04-30 12:23:34 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Grindavíkurbær - Ársreikningur

Ársreikningur Grindavíkurbæjar fyrir árið 2012


   Ársreikningur Grindavíkurbæjar og stofnana fyrir árið 2012 verður lagður
fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn Grindavíkur þann 2. maí 2013. 

Samkvæmt lögum ber að fjalla um ársreikninginn á tveimur fundum í bæjarstjórn
og verður seinni  umræða þann 28. maí 2013 og á þeim fundi er samþykkt
bæjarstjórnar á ársreikningnum fyrirhuguð. 

   Ef bæjarstjórn samþykkir ársreikninginn í fyrirliggjandi mynd og við
afgreiðslu og samþykkt bæjarstjórnar koma ekki fram mikilvægar
viðbótarupplýsingar, sem geta haft áhrif á gerð ársreikningsins og/eða
niðurstöður hans, munu endurskoðendur árita ársreikninginn með fyrirvaralausri
áritun.