2013-06-20 18:28:51 CEST

2013-06-20 18:29:37 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Íslandsbanki hf. - Fyrirtækjafréttir

Islandsbanki hf. :Íslandsbanki lýkur víxlaútboði


Íslandsbanki hf. lauk í dag útboði á fjórum víxlum til 2,3,5 og 6 mánaða. Hver
flokkur getur að hámarki orðið 1.500.000.000 krónur að nafnvirði. Útboðinu var
þannig háttað að boðið var í magn á fyrirfram ákveðnu verði. 2 mánaða víxillinn
var boðinn út á 6,00% flötum vöxtum (verð: 99,1899), 3 mánaða víxillinn á 6,10%
flötum vöxtum (verð: 98,4650), 5 mánaða víxillinn á 6,25% flötum vöxtum (verð
97,6106) og 6 mánaða víxillinn á 6,30% flötum vöxtum (verð: 96,8969).

Tilboðum var tekið í 2 mánaða víxilinn að fjárhæð 310.000.000 krónur að
nafnvirði, að fjárhæð 920.000.000 krónur að nafnvirði í 3 mánaða víxilinn og að
fjárhæð 300.000.000 krónur að nafnvirði í 6 mánaða víxilinn.

Bréfin voru seld til breiðs hóps fjárfesta. Stefnt er að töku víxlanna til
viðskipta í Nasdaq OMX Iceland þann 27. júní næstkomandi.

Nánari upplýsingar veita:

Fjárfestatengill - Jóhann Ottó Wathne, johann.wathne@islandsbanki.is og í
síma 440 4607.

Forstöðumaður samskiptamála - Már Másson, mar.masson@islandsbanki.is, og í síma
 440 4990.

[HUG#1711019]