2016-01-08 15:55:53 CET

2016-01-08 15:55:53 CET


REGLAMENTUOJAMA INFORMACIJA

Islandų
Ríkisútvarpið ohf. - Fyrirtækjafréttir

Hallalaus rekstur RÚV árið 2015


Stjórn Ríkisútvarpsins ohf. vill, að gefnu tilefni, árétta að rekstur félagsins
á árinu 2015 er hallalaus eins og að var stefnt. Jákvæð niðurstaða er af
rekstri félagsins. Einskiptis söluhagnaður vegna byggingarréttar félagsins við
Efstaleiti kemur til viðbótar jákvæðri rekstrarniðurstöðu. 

Rekstraráætlun hafði verið unnin fyrir árið 2016 sem byggði á forsendum um
óbreytt útvarpsgjald eins og fyrirætlanir mennta- og menningarmálaráðherra
gerðu ráð fyrir. Niðurstaða fjárlaga var önnur og brást stjórn Ríkisútvarpsins
við með því að samþykkja uppfærða rekstraráætlun fyrir árið 2016 á
stjórnarfundi Ríkisútvarpsins ohf. sem haldinn var 21. desember sl. Helstu
forsendur rekstraráætlunar gera ráð fyrir hallalausum rekstri félagsins á árinu
2016 eins og raunin var á síðastliðnu ári. Forsendur rekstraráætlunar eru í
samræmi við fjárlög 2016, m.a. lækkað útvarpsgjald, og gera ráð fyrir
kostnaðarauka vegna kjarasamningshækkana umfram verðlag. Í áætlun er enn
óútfærð hagræðingarkrafa en gert er ráð fyrir að hún verði útfærð á næstu
vikum.