2016-01-08 17:34:29 CET

2016-01-08 17:34:29 CET


REGLAMENTUOJAMA INFORMACIJA

Islandų Anglų
Íslandsbanki hf. - Fyrirtækjafréttir

Íslandsbanki lýkur víxlaútboði


Íslandsbanki  hf. lauk í dag útboði á  víxlum til 4, 5 og 6 mánaða. Tilboðum var
tekið fyrir 1,12 ma. kr. en heildareftirspurn í útboðinu var 3,72 ma. kr.

Seldir  voru víxlar í   4 mánaða flokkinn ISLA  16 0520 að nafnvirði 380 m.kr. á
6,44% flötum  vöxtum (verð 97,7957). Í 5 mánaða flokkinn ISLA 16 0616 seldust að
nafnvirði  380 m.kr. á 6,49% flötum vöxtum (verð 97,3158) og í 6 mánaða flokkinn
ISLA   16 0721 seldust  að  nafnvirði  360 m.kr.  á  6,50% flötum  vöxtum  (verð
96,7170).

Fyrir  útboðið  voru  útistandandi  víxlar  Íslandsbanka að fjárhæð 10,2 ma. kr.
Stefnt  er  að  töku  víxlanna  til  viðskipta  í Nasdaq Iceland þann 15. janúar
næstkomandi.

Nánari upplýsingar veita:

  * Fjárfestatengill - Tinna Molphy, ir@islandsbanki.is og í síma 440 3187.
  * Samskiptastjóri - Edda Hermannsdóttir, pr@islandsbanki.is og í síma
    440 4005.


[HUG#1977739]