2009-06-17 00:38:48 CEST

2009-06-17 00:41:37 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Bakkavör Group hf. - Fyrirtækjafréttir

- Staða viðræðna við skuldabréfaeigendur


Bakkavör á nú í viðræðum við hóp innlendra fagfjárfesta og banka sem eru með um
70% af skuldum móðurfélagsins en stærstur hluti þeirra eru eigendur að
skuldabréfum sem félagið hefur gefið út og skráð eru í NASDAQ OMX Kauphöllinni. 

Viðræðurnar ganga út á framlengingu á gjalddaga skuldabréfanna til 2012.
Markmiðið er að allir hagsmunaaðilar njóti ávinnings væntanlegs rekstrarbata
hjá Bakkavör í kjölfar viðamikilla hagræðingaraðgerða sem félagið hefur nýlokið
og sem hafa gert félaginu kleift að snúa rekstrinum til betri vegar frá og með
þessu ári. Viðræðurnar ganga meðal annars út á að eigendur skuldabréfanna njóti
talsvert bættra kjara. Okkar fyrirheit gagnvart eigendum skuldabréfanna er að
allir aðilar fái greitt að fullu. 

Ósk félagsins um framlengingu skuldabréfanna kemur í kjölfar samninga við
lánveitendur rekstrarfélaga samstæðunnar nú í vor sem munu sjá félaginu fyrir
nægjanlegri rekstrarfjármögnun til ársins 2012. Þeir samningar sýna jafnframt
tiltrú og stuðning lánveitenda við starfsemi Bakkavarar. 

Horfur í rekstri Bakkavarar eru góðar þrátt fyrir ríkjandi efnahagsaðstæður.
Eins og fram kom í síðasta árshlutauppgjöri félagsins er gert ráð fyrir 15%
aukningu framlegðar nú í ár og að EBITDA verði u.þ.b. 125 milljónir punda. 

Viðræður við fagfjárfesta ganga vel og stjórn félagsins er vongóð um að
niðurstöður liggi fyrir fljótlega. 


Tengiliðir:	

Ísland:	
Snorri Guðmundsson	
Bakkavör Group hf Fjárfestatengsl
Sími: +354 550 9710
Farsími +354 858 9710	
Tölvupóstur: fjarfestatengsl@bakkavor.com	

Utan Íslands:
Fiona Tooley
Citigate Dewe Rogerson
Farsími: +44 (0) 7785 703523
Sími : +44 (0)121 455 8370
Tölvupóstur: fiona.tooley@citigatedr.co.uk