|
|||
![]() |
|||
2015-04-28 11:01:28 CEST 2015-04-28 11:02:29 CEST REGLERAD INFORMATION Kópavogsbær - FyrirtækjafréttirKópavogsbær gefur út nýjan skuldabréfaflokkKópavogsbær gefur út nýjan skuldabréfaflokk, KOP 15 1 sem er opinn að stærð. Skuldabréfin eru verðtryggð til 25 ára, með jöfnum afborgunum og bera 3,26% nafnvexti, og fara greiðslur fram ársfjórðungslega. Nú þegar hafa verið seld skuldabréf að fjárhæð 3 milljarðar króna að nafnvirði. Skuldabréfin verða skráð rafrænt hjá Verðbréfaskráningu Íslands hf. og er útgáfudagur þeirra 4. maí 2015. Skuldabréfin verða tekin til viðskipta á aðalmarkaði NASDAQ Iceland. Markaðir Íslandsbanka höfðu umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna, ásamt töku þeirra til viðskipta. |
|||
|