|
|||
2014-03-21 10:13:11 CET 2014-03-21 10:14:12 CET REGULATED INFORMATION Skipti hf. - FyrirtækjafréttirHæstiréttur staðfestir dóm héraðsdómsMeð úrskurði Hæstaréttar þann 20. mars í máli nr. 773/2013 var staðfestur úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur frá 21. nóvember 2013 í máli Símans hf. gegn Glitni hf. og varðar uppgjör gjaldmiðlaskiptasamninga. Héraðsdómur viðurkenndi kröfu Símans hf. í bú Glitnis hf. að fjárhæð 10.543.027.330 krónur með stöðu í réttindaröð skv. 113. gr. laga nr. 21/1991 um gjaldþrotaskipti o.fl. Skipti hf. gjaldfærðu 3 milljarða króna í ársreikningi 2013 vegna niðurstöðu héraðsdóms og hefur því verið gert ráð fyrir fjárhagslegum áhrifum niðurstöðunnar í reikningum félagsins. |
|||
|