2013-09-05 10:51:22 CEST

2013-09-05 10:52:23 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reginn hf. - Fyrirtækjafréttir

Reginn hf. gerir kauptilboð í hlutabréf í Eik fasteignafélagi hf.


Reginn hf. lagði  í dag fram tilboð í 100% hlutafjár í Eik fasteignafélagi hf. 
Tilboðið nær til allra hluthafa þó þarf að lágmarki samþykki 68% eigenda
hlutafjár í félaginu. Kauptilboðið miðast við að greitt verði fyrir allt
hlutafé í félaginu með nýju hlutafé í Reginn hf., að nafnverði 603 m.kr., ef
hluthafafundur Regins samþykkir kaupin. Gangi viðskiptin eftir og allt hlutafé
í Eik fasteignafélagi hf. verði keypt mun það þýða að nýir eignarhlutir í
Reginn hf. sem gefnir verða út vegna kaupanna munu nema u.þ.b. 32% af
heildarhlutafé félagsins. 

Kauptilboð  byggir á að hver hlutur í Reginn hf. sé metinn á 13,53 sem er
meðalgengi síðustu fimm viðskiptadaga og hver hlutur í Eik fasteignafélagi hf.
sé metinn á 5,05. 

Framangreind tilboðsfjárhæð er byggð á uppgjörsupplýsingum sem hafa verið
birtar á árinu 2013, þ.e. ársreikningi 2012 og uppgjöri fyrsta og annars
ársfjórðungs 2013.  Ennfremur hefur tilboðsgjafi gefið sér eftirfarandi
forsendur hvað varðar helstu lykiltölur í rekstri félagsins fyrir árið 2013: 

·         Leigutekjur félagsins verði um 1.900 m.kr. m.v. núverandi eignasafn
(staða 30. júní 2013). Byggir þessi forsenda á hækkun leigutekna á fyrsta og
öðrum ársfjórðungi milli áranna 2012 og 2013 samkvæmt kynntum uppgjörum fyrir
sama tímabil 2013. 

·         Rekstrarhagnaður  fyrir matsbreytingar og afskriftir (EBITDA) verði
amk. 1.450 m.kr. 

·         Langtímaskuldir félagsins séu ekki yfir 14.900 m.kr.

·         Ekki er gert ráð fyrir að félagið SMI ehf. eða fasteignir í þess eigu
séu meðal eigna félagsins við kaupin eða að skuldbindingar um þau kaup hafi
verið gerðar. 

Tilboðið sem gildir til kl. 16:00 þann 20. september n.k. er með fyrirvara um
að tilboðsgjafi  fái aðgang að öllum nauðsynlegum gögnum félagsins til að unnt
verði að framkvæma lögfræðilega-, fjárhagslega-, tæknilega- og skattalega
áreiðanleikakönnun á félaginu.  Auk þess er tilboð þetta gert með fyrirvara um
samþykki hluthafa Regins, eftirlitsaðila eins og Samkeppniseftirlitsins og að
nýtt hlutafé verði skráð í Kauphöll. Ef af viðskiptunum verður þá er áætlað að
þeim verði lokið fyrir áramót 2013/2014. 



Nánari upplýsingar veitir:

Helgi S. Gunnarsson

Forstjóri Regins hf.

Sími: 512 8900 / 899 6262