|
|||
2009-09-11 17:06:06 CEST 2009-09-11 17:07:07 CEST REGULATED INFORMATION Kópavogsbær - Ársreikningur- 6 mánaða uppgjör 2009Meðfylgjandi er óendurskoðað og ókannað uppgjör vegna Kópavogsbæjar fyrstu sex mánuði ársins 2009, sem sett er upp af endurskoðendum bæjarins samkvæmt upplýsingum og gögnum sem þeir fengu send eða óskuðu eftir frá bænum. Uppgjörið er notað innanhúss til að athuga hvernig rekstrarkostnaður þróast og myndar grunn að endurskoðaðri fjárhagsáætlun vegna 2009, sem reiknað er með að birt verði fyrir lok septembermánaðar. Aðal frávikið frá áætlun liggur í fjármagnsliðum. Er þar aðallega um að ræða reiknað gengistap vegna erlendra lána er (um 686 m.kr.), verðbólga varð heldur meiri en reiknað var með og markaðs vextir hærri. Rekstur málaflokka er nánast á áætlun. Afkoma fyrir fjármagnsliði og afskriftir nemur alls 1.372 m.kr. en í áætlun var gert ráð fyrir 1.417 m.kr. Þrátt fyrir erfiðar aðstæður í samfélaginu og með hliðsjón af samfélagslegum skyldum bæjarfélagsins, einkum þegar hart er í ári, hefur almennur rekstur bæjarsjóðs verið í takti við áætlun, sem unnin var í lok síðasta árs. |
|||
|