2013-02-28 22:31:52 CET

2013-02-28 22:32:54 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Eimskipafélag Íslands hf. - Ársreikningur

Afkoma Eimskips fyrir árið 2012 er í samræmi við væntingar félagsins


  -- Rekstrartekjur námu 414,3 milljónum evra
  -- Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) eftir einskiptisliði var 40,8
     milljónir evra
  -- Hagnaður eftir skatta nam 12,7 milljónum evra
  -- Eiginfjárhlutfall var 63,7% í árslok
  -- Flutningsmagn í áætlanasiglingum félagsins jókst um 3,4% á milli ára



Gylfi Sigfússon, forstjóri

„Afkoma ársins 2012 er í samræmi við okkar væntingar. Rekstrarhagnaður
félagsins fyrir afskriftir á árinu 2012 nam 40,8 milljónum evra og hefur vaxið
um 8,8% frá fyrra ári að teknu tilliti til einskiptisliða. Hagnaður Eimskips
eftir skatta nam 12,7 milljónum evra. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir nam
10,2 milljónum evra á fjórða ársfjórðungi sem samsvarar 18,7% aukningu
rekstrarhagnaðar, að teknu tilliti til kostnaðar við skráningu og
kaupréttarsamninga sem fallið var frá á fjórðungnum, samanborið við fjórða
ársfjórðung 2011. 

Flutningsmagn í áætlanaflutningum félagsins á Norður-Atlantshafi jókst um 3,4%
frá fyrra ári. Magn í frystiflutningsmiðlun dróst hins vegar saman um 0,6% frá
fyrra ári eftir nokkurn vöxt á árunum 2010 og 2011. Horfur í flutningum á
Norður-Atlantshafi eru jákvæðar á komandi mánuðum en töluverður vöxtur hefur
verið í flutningum frá Noregi og Færeyjum og í flutningum á milli Evrópu og
Norður-Ameríku. 

Eimskip gekk frá kaupum á þremur frysti- og kæliskipum á árinu 2012, en félagið
hafði verið með skipin á leigu frá árinu 2005. Kaupin efla enn frekar stoðir og
rekstraröryggi siglingakerfisins á Norður-Atlantshafi og sérstaklega í þeirri
þjónustu sem þau veita sjávarútveginum í Noregi. Gert er ráð fyrir að
gámaskipin tvö sem eru í smíðum fyrir félagið í Kína verði afhent á seinni
helmingi ársins 2013, en þau munu styrkja siglingakerfi og þjónustuframboð
Eimskips á komandi árum. 

Frá og með síðari hluta marsmánaðar 2013 mun Ameríkuleið félagsins hefja
viðkomur í Portland, Maine í stað Norfolk og Everett á austurströnd
Bandaríkjanna. Meginmarkmið breytingarinnar er að stytta siglingartíma til og
frá Bandaríkjunum og koma á reglubundnum siglingum aðra hverja viku.
Breytingunni er einnig ætlað að styðja enn frekar við aukna flutninga á milli
Norður-Noregs og Norður-Ameríku og bæta tengingu á milli Bandaríkjanna og
Nýfundnalands, þar sem boðið verður upp á siglingar aðra hverja viku með
þriggja daga siglingartíma, auk þess sem siglingartími milli Íslands og
Norður-Ameríku styttist. 

Eimskip opnaði skrifstofu í Tælandi á árinu 2012 og í mars 2013 mun félagið
opna skrifstofu í Gdynia í Póllandi og styrkir þar með þjónustu sína í
frystiflutningsmiðlun í Eystrasaltinu. 

Félagið hefur lagt sérstaka áherslu á uppbyggingu á Norður-Atlantshafi og þá
sérstaklega í tengslum við mögulegar Norðurheimskautssiglingar og verkefni
tengd stóriðju, olíu og námuvinnslu ásamt hafnarþjónustu og annarri tengdri
þjónustu. 

Eimskip tók í notkun nýtt og fullkomið snjallforrit, „App“, sem býður
viðskiptavinum upp á að fá í rauntíma upplýsingar um stöðu sendinga í
snjallsíma. Snjallforritið er auðvelt í notkun og sýnir jafnframt staðsetningu
skipa Eimskips, skipaáætlun og siglingaleiðir og veitir auk þess upplýsingar um
alla helstu þjónustuþætti fyrirtækisins. Áður hafði félagið kynnt til sögunnar
vefviðmót fyrir viðskiptavini, ePort, þar sem fylgjast má með sendingum, leita
upplýsinga og senda inn flutningsfyrirmæli. Frá janúar 2013 hefur Eimskip boðið
nýja þjónustu í gegnum netið sem gengur undir nafninu eBOX, en með henni er
boðið upp á þægilegar og einfaldar lausnir til að flytja minni sendingar frá
Evrópu til Íslands. 

Eimskip leggur hér eftir sem hingað til áherslu á að veita viðskiptavinum sínum
framúrskarandi þjónustu, en það hefur meðal annars verið gert með því að
styrkja skipa-, gáma- og tækjakost félagsins á árinu. 

Eimskip lauk hlutafjárútboði sínu og skráningu á NASDAQ OMX Iceland í nóvember
2012. Markmiðið með skráningunni var að tryggja almenna og góða dreifingu á
eignarhaldi félagsins en hluthafar eru í dag um 2.300 talsins. Hlutabréf
félagsins voru tekin til viðskipta þann 16. nóvember 2012. 

Eimskip lítur björtum augum til framtíðarinnar og til mögulegra vaxtartækifæra
á Norður-Atlantshafi og á alþjóðavísu. Félagið mun fagna 100 ára afmæli sínu
þann 17. janúar 2014.“ 



Frekari upplýsingar

  -- Gylfi Sigfússon, forstjóri, sími: 525 7202
  -- Hilmar Pétur Valgarðsson, framkvæmdastjóri fjármála- og stjórnunarsviðs, 
     sími: 525 7202
  -- Erna Eiríksdóttir, forstöðumaður fjárfestatengsla, sími: 825 7220, netfang:
     investors@eimskip.is