2013-01-25 18:01:06 CET

2013-01-25 18:02:07 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Orkuveita Reykjavíkur - Fyrirtækjafréttir

Stjórn Orkuveitunnar samþykkir kauptilboð í höfuðstöðvarnar


Reykjavík, 2013-01-25 18:01 CET (GLOBE NEWSWIRE) -- Stjórn Orkuveitu
Reykjavíkur samþykkti á fundi sínum í dag, með fyrirvara um staðfestingu
eigenda, kauptilboð í höfuðstöðvar fyrirtækisins að Bæjarhálsi 1 og Réttarhálsi
1 í Reykjavík. Salan er mikilvægur þáttur í framvindu Plansins, aðgerðaáætlunar
Orkuveitunnar og eigenda, með því að lausafjárstaða fyrirtækisins batnar sem
söluandvirðinu nemur. Tilboðsfjárhæðin er 5,1 milljarður króna og verður
söluhagnaður Orkuveitunnar, það er mismunur söluverðs og bókfærðs verðmætis, um
600 milljónir króna. Straumur fjárfestingabanki gerði tilboðið fyrir hönd
óstofnaðs félags með fyrirvara um áreiðanleikakönnun og endanlega fjármögnun. 

Í samþykkt stjórnar Orkuveitunnar felst að Orkuveitan muni leigja húseignirnar
til 20 ára og hafa rétt til að kaupa þær aftur eftir 10 ár sem og við lok
leigutímans. 

Endanlegur sölusamningur verður lagður fyrir stjórn Orkuveitunnar.

Bjarni Bjarnason forstjóri
Við erum að vinna eftir ákaflega metnaðarfullu plani í rekstri Orkuveitunnar.
Um síðustu áramót hafði það gengið eftir í öllum þáttum nema eignasölu. Sala
stærri eigna er flókið viðfangsefni. Nú sjáum við fram á að geta lokið tveimur
slíkum samningum, um höfuðstöðvarnar og Perluna. Þessi samningur er
Orkuveitunni fjárhagslega hagstæður og það er mikilvægt að fyrirtækið eigi þess
kost að eignina aftur þyki það skynsamlegt þegar þar að kemur. 


         Nánari upplýsingar:
         Bjarni Bjarnason
         forstjóri
         516 7707