|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
2017-08-24 17:36:16 CEST 2017-08-24 17:36:16 CEST REGLAMENTUOJAMA INFORMACIJA Sjóvá-Almennar tryggingar hf - Árshlutareikningur - 6 mán.Sjóvá-Almennar tryggingar hf. - ÁrshlutauppgjörHagnaður 1.803 m.kr. á fyrstu sex mánuðum ársins Hagnaður 702 m.kr. á öðrum ársfjórðungi
Hermann Björnsson, forstjóri: „Afkoma Sjóvár á öðrum ársfjórðungi er í takt við það sem búast mátti við og það sama má segja um afkomuna fyrstu sex mánuði ársins. Eins og oft áður er það fjárfestingarstarfsemin sem myndar stærsta hluta heildarafkomunnar. Undanfarin misseri hefur verið unnið að því að bæta afkomu vátryggingastarfseminnar. Þess sjást merki í afkomu annars ársfjórðungs sem var mun betri en fyrir ári þrátt fyrir einstök stærri stór tjón það sem af er árinu. Fyrir fyrstu sex mánuði ársins hefur vöxtur eigin iðgjalda verið meiri en vöxtur eigin tjóna. Við teljum afar brýnt að ná betri tökum á þeirri tjónaþróun sem verið hefur í umferðinni þar sem hvert tjón getur valdið óbætanlegum skaða og kostnaður numið tugum milljóna. Sjóvá er þátttakandi í verkefninu Höldum fókus sem snýst um að vekja athygli á mikilli og almennri símnotkun við akstur og afleiðingum hennar með það að markmiði að draga úr slysum. Það er til mikils að vinna fyrir okkur sem samfélag að breyta þeirri hegðun til hins betra.“ segir Hermann. Helstu niðurstöður og lykiltölur
Kynningarfundur 24. ágúst kl. 16:15
Nánari upplýsingar |