|
|||
2017-08-24 17:45:10 CEST 2017-08-24 17:45:10 CEST REGLAMENTUOJAMA INFORMACIJA Vátryggingafélag Íslands hf. - ÁrsreikningurVátryggingafélag Íslands hf. - árshlutauppgjör
Vátryggingafélag Íslands hf. Samstæðuárshlutareikningur félagsins fyrir fyrri helming ársins 2017 var staðfestur af stjórn og forstjóra félagsins á stjórnarfundi þann 24. ágúst 2017. Árshlutareikningurinn hefur verið kannaður af endurskoðendum félagsins. Helstu niðurstöður fyrri helmings ársins 2017
Helstu niðurstöður annars ársfjórðungs 2017
Helgi Bjarnason forstjóri VÍS „Annar ársfjórðungur var félaginu hagfelldur. Samsett hlutfall var 84,2% sem er með því lægsta sem við höfum séð um langt árabil og var afkoma viðunandi af flestum vátryggingagreinum á tímabilinu. Sá iðgjaldavöxtur sem við höfum séð síðustu misseri heldur áfram og er þar bæði um að ræða hærri meðaliðgjöld, en einnig ný viðskipti. Þannig eru eigin iðgjöld að vaxa um 15,6% frá sama tímabili í fyrra. Félagið hefur frá árinu 2015 unnið að breytingum á iðgjöldum til að bregðast við mikilli hækkun í tíðni tjóna og tjónakostnaðar. Því er niðurstaða fjórðungsins gleðiefni og vonast er til að farið sé að draga úr þeirri miklu hækkun tjónakostnaðar sem verið hefur undanfarna ársfjórðunga.“ Horfur Gert er ráð fyrir ágætum iðgjaldavexti á árinu 2017 og er reiknað með að samsett hlutfall verði á bilinu 95-98%. Kynningarfundur Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og hluthafa verður haldinn hjá VÍS í Ármúla 3, þann 25. ágúst n.k. kl. 8:30. Þar mun Helgi Bjarnason forstjóri kynna afkomu félagsins og svara spurningum. Hægt verður að fylgjast með fundinum í beinni útsendingu á vef VÍS (vis.is/vis/fjarfestar/fjarfestafundur). Þar verður einnig hægt að nálgast kynningarefni og upptöku að fundi loknum. Hluthafar og fjárfestar eru hvattir til að mæta á fundinn til að kynna sér uppgjörið, eða hafa samband við samskiptastjóra félagsins vilji þeir óska eftir fundi til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri. Fjárhagsdagatal Viðburður Dagsetning:
Ársuppgjör 2017 8. vika 2018 Nánari upplýsingar Nánari upplýsingar veitir Andri Ólafsson samskiptastjóri í síma 660-5105 og í netfangi fjarfestatengsl@vis.is.
|
|||
|