2013-06-11 11:14:09 CEST

2013-06-11 11:15:10 CEST


REGLAMENTUOJAMA INFORMACIJA

Islandų
Eik fasteignafélag hf. - Ársreikningur

Eik fasteignafélag hf. hagnaðist um 203 milljónir króna á fyrstu þrem mánuðum ársins 2013.


Rekstrarhagnaður félagsins var rúmlega 382 milljónir króna og jókst um 8
prósent frá sama tímabili ársins 2012. Leigutekjur Eikar námu tæplega 485
milljónum króna og jukust um 10 prósent. 

Hagnaður Eikar fasteignafélags hf. nam 203.298.000 krónum á fyrstu þremur
mánuðum ársins 2013.  Sé reksturinn borin saman við rekstur fyrstu þriggja
mánaða ársins 2012 sést að verulegur viðsnúningur hefur átt sér stað.  Liggur
viðsnúningurinn annars vegar í því að ekki var reiknuð matsbreyting
fjárfestingaeigna fyrir fyrstu þrjá mánuði ársins 2012 og hins vegar lækkuðu
fjármagnsgjöld á árinu 2013 vegna endurfjármögnunar félagsins sem hófst í maí
2012 og lauk í október sama ár. 

Áhrif endurfjármögnunarinnar koma best fram ef borinn er saman hagnaður
tímabilanna fyrir matsbreytingu fjárfestingaeigna, verðbætur og skatta, þá
kemur í ljós að sá hagnaður nam 169 milljónum króna árið 2013 og 83 milljónum
2012. 

Uppgjör þetta er birt í tengslum við ákvörðun stjórnar um að auka hlutafé
félagsins með útgáfu nýrra hluta.  Alls verða seldir hlutir fyrir 750 milljón
krónur að markaðsvirði. 

Frekari upplýsingar veitir:

Garðar Hannes Friðjónsson,
forstjóri Eikar fasteignafélags hf.
S. 861-3027