2008-03-09 22:34:42 CET

2008-03-09 22:35:42 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Flaga Group hf. - Fyrirtækjafréttir

- Afkomuviðvörun vegna virðisrýrnunar viðskiptavildar


Stjórn Flögu Group hf. tilkynnir í dag að félagið hefur ákveðið að færa        
virðisrýrnun á viðskiptavild sem mun hafa verulega neikvæð áhrif á afkomu
fjórða ársfjórðungs og ársreikning ársins 2007. 

Áætlað er að færa virðsirýrnun að upphæð um það bil USD 11,5 milljónir á       
viðskiptavild í tengslum við kaup Flögu á Medcare Systems U.S. árið 2002 (nú
þekkt sem Embla Systems). Virðisrýrnun verður ekki færð á viðskiptavild sem
tengist kaupum félagsins á Sleeptech árið 2004 er mun sem fyrr verða meðal
eigna á efnahagsreikningi félagsins. 

Upplýsingar sem koma fram í tilkynningu þessari eru einungis bráðabirgðamat yfir
stjórnar félagsins og eru ekki byggðar á endurskoðuðum eða könnuðum niðurstöðum.

Flaga Group mun birta ársreikninga sína fyrir árið 2007 þann 27. mars 2008. 

Frekari upplýsingar veita:	
David Baker, forstjóri, í síma: + 1 303 962 1780
Criss Sakala, fjármálastjóri, í síma: + 1 303 962 1781