2011-07-13 11:30:28 CEST

2011-07-13 11:31:29 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Kaup Lánamála ríkisins á ríkisskuldabréfum samhliða öðru gjaldeyrisútboði Seðlabanka Íslands


Í tilkynningu Lánamála ríkisins þann 28. mars 2011 kemur fram að kaupendur
gjaldeyris í útboðum Seðlabanka Íslands geti selt ríkissjóði ríkisvíxla og
ríkisbréf með gjalddaga fyrir árslok 2013 til fjármögnunar á gjaldeyriskaupum. 
Í fréttatilkynningum 6. og 8 júlí tilkynntu Lánamálin kjörin sem buðust
kaupendum gjaldeyris í fyrsta útboðinu sem var haldið í gær, 12. júlí. 

Kaupendur gjaldeyris nýttu sér ekki þennan rétt og því keyptu Lánamál ríkisins
f.h. ríkissjóðs ekkert af ríkisskuldabréfum.