2011-07-13 13:45:44 CEST

2011-07-13 13:46:46 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Niðurstaða útboðs ríkisvíxla RIKV 11 1017 og RIKV 12 0116


Útboð á ríkisvíxlum í flokkum RIKV 11 1017 og RIKV 12 0116 með
tilboðsfyrirkomulagi fór fram hjá Lánamálum ríkisins kl. 11:00 í dag. 

Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð buðust bjóðendum á sama
verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið.
Vaxtaprósenta er reiknuð út miðað við flata vexti og dagar taldir sem raundagar
miðað við 360 daga ár (Actual/360). 

Helstu niðurstöður útboðsins eru þessar:

RIKV 11 1017:
Alls bárust 22 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 13.862 m.kr. að nafnverði.
Tilboðum var tekið fyrir 12.862 m.kr. að nafnverði á verðinu 99,225 (flatir
vextir 2,99%). 

RIKV 12 0116:
Alls bárust 17 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 6.500 m.kr. að nafnverði.
Tilboðum var tekið fyrir 6.000 m.kr. að nafnverði á verðinu 98,582 (flatir
vextir 2,80%).