|
|||
![]() |
|||
2013-07-03 11:26:45 CEST 2013-07-03 11:27:46 CEST REGLERAD INFORMATION Mosfellsbær - FyrirtækjafréttirMosfellsbær gefur út nýjan skuldabréfaflokkMosfellsbær hefur gefið út nýjan skuldabréfaflokk með auðkennið MOS 13 1. Skuldabréfin eru verðtryggð jafngreiðslubréf til 21 árs með greiðslu afborgana og vaxta á 6 mánaða fresti. Gefnar eru út 600 milljónir að nafnverði á ávöxtunarkröfunni 3,05% en samkvæmt skilmálum er hægt að stækka flokkinn frekar. Skuldabréfaflokkurinn MOS 13 1 verður gefinn út rafrænt hjá Verðbréfaskráningu Íslands hf. miðvikudaginn 3. júlí 2013. Skv. skilmálum verða bréfin tekin til viðskipta á aðalmarkaði NASDAQ OMX Iceland hf. fyrir árslok 2013. H.F. Verðbréf hefur umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna. Nánari upplýsingar veitir: Haraldur Sverrisson, bæjarstjóri Mosfellsbæjar Sími: 525-6700 |
|||
|