2013-07-08 17:31:00 CEST

2013-07-08 17:31:01 CEST


REGLAMENTUOJAMA INFORMACIJA

Islandų Anglų
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Útboð ríkisvíxla RIKV 13 1015 OG RIKV 14 0115


Fimmtudaginn 11. jú1í kl. 11:00 fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á
ríkisvíxlum í flokkunum RIKV 13 1015 og RIKV 14 0115 sem eru með gjalddaga 15.
október 2013 og 15. janúar 2014. 

Lánamál ríkisins áskilja sér rétt til að samþykkja öll tilboð sem berast, að
hluta eða hafna þeim öllum. Einungis aðalmiðlurum ríkisverðbréfa er heimilt að
gera tilboð í útboðinu, en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir fjárfesta.
Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði. 

Útboðinu verður þannig háttað að öll samþykkt tilboð bjóðast aðalmiðlurum á
sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ræður söluverðinu. Að
öðru leyti er vísað í útboðsskilmála sem fylgja þessari frétt. 

Greiðslu- og uppgjörsdagur er mánudagur 15. júlí 2013.

Sótt verður um að RIKV 14 0115 verði tekinn til viðskipta í NASDAQ OMX á
Íslandi þriðjudaginn 16. júlí 2013.