2008-11-27 10:10:00 CET

2008-11-27 10:10:00 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Hf. Eimskipafélag Íslands - Fyrirtækjafréttir

Umfangsmiklar hagræðingaraðgerðir hjá Eimskip


-Fækkun skipa og hluti starfsmanna tekur á sig 10% launalækkun
-Áætlaður sparnaður á ársgrundvelli er talinn 2,4 milljarðar króna

Hf. Eimskipafélag Íslands hefur gripið til umfangsmikilla hagræðingaraðgerða í
ljósi efnahagsaðstæðna, sem meðal annars koma fram í verulegum samdrætti á
innflutningi til landsins. 

Þær aðgerðir sem þegar hefur verið gripið til er fækkun skipa sem þjónað hafa
inn- og útflytjendum félagsins á Íslandi.   Fækkað var úr 11 skipum í átta, auk
þess sem gripið var til margra anarra hagræðingaraðgerða er snúa að
siglingakerfinu, innanlandskerfinu og öðrum þáttum í rekstri félagsins. 

Í tengslum við flutningaþjónustu Eimskips á Íslandi starfa um 1.500 starfsmenn
þar af um 900 á Íslandi. Til að komist verði hjá verulegri fækkun starfsmanna
hefur verið ákveðið að lækka laun um 10% hjá þeim starfsmönnum sem hafa yfir
300.000 kr. mánaðarlaun ásamt því að draga úr vakta- og yfirvinnu. Þrátt fyrir
þessar aðgerðir var ekki komist hjá því að grípa til uppsagna í lok mánaðarins
og verður 25 starfsmönnum á Íslandi og 47 starfsmönnum í Evrópu sagt upp. 

Áætlaður sparnaður á ársgrundvelli mun vera 2.4 milljarðar króna þar af 550
milljónir kr. vegna lækkunar launakostnaðar. 

Gylfi Sigfússon forstjóri:  “Rétt eins og önnur fyrirtæki í landinu er Eimskip
að sigla í gegnum erfitt skeið sem kemur meðal annars fram í verulegum
samdrætti í innflutningi.  Ofan á þetta bætast erfiðar aðstæður á
alþjóðflutninga- og fjármagsmörkuðum. Því var okkur nauðugur einn kostur að
grípa til umfangsmikilla hagræðingaraðgerða. Af tveimur slæmum kostum var það
frekar vilji okkar að lækka laun starfsmanna sem hafa yfir 300 þúsund í
mánaðarlaun, fremur en segja upp fleiri starfsmönnum í því erfiða árferði sem
nú ríkir á vinnumarkaði og almennt í íslensku þjóðfélagi.”