|
|||
2011-06-09 13:45:30 CEST 2011-06-09 13:46:31 CEST REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirNiðurstaða í útboði óverðtryggða ríkisbréfa RIKB 16 1013Útboð á óverðtryggðum ríkisbréfum, RIKB 16 1013 fór fram hjá Lánamálum ríkisins kl. 11:00 í dag. Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð buðust á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið. Helstu niðurstöður útboðsins voru þessar: RIKB 16 1013: Alls bárust 13 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 10.400 m.kr. að nafnverði. Eitt tilboð var tekið fyrir 2.000 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 98,400 (6,35% ávöxtunarkröfu). Ennfremur býðst aðalmiðlurum að kaupa 10% af nafnverði þess sem selt var í útboðinu á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 þriðjudaginn 14. júní. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur fyrir þessi viðskipti er 15. júní 2011. Þar sem markmiðum í útgáfumálum ríkissjóðs fyrir annan ársfjórðung hefur verið náð, verður hætt við útboð ríkisbréfa sem fyrirhugað var að halda þann 24. júní. |
|||
|