2009-06-18 11:46:32 CEST

2009-06-18 11:47:31 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Íbúðalánasjóður - Fyrirtækjafréttir

Íbúðalánasjóður - Vaxtaákvörðun


Samkvæmt 3. mgr. 21. gr. laga um húsnæðismál nr. 44/1998, með síðari
breytingum, og samkvæmt 14. gr. reglugerðar nr. 522/2004 um ÍLS-veðbréf og
íbúðabréf getur stjórn Íbúðalánasjóðs ákvarðað vexti ÍLS-veðbréfa með hliðsjón
af fjármögnunarkostnaði í reglulegum útboðum íbúðabréfa og með vegnum
fjármagnskostnaði vegna uppgreiddra lána, að viðbættu vaxtaálagi. 

Vaxtaákvörðun Íbúðalánasjóðs byggir á ávöxtunarkröfu í útboði íbúðabréfa sem
haldið var 16.júní s.l. ásamt vegnum fjármagnskostnaði uppgreiðslna
ÍLS-veðbréfa.  Vegnir vextir í útboðinu og uppgreiddra ÍLS-bréfa eru 4,14%. 

Vaxtaálag vegna rekstrar er 0,25%, vegna útlánaáhættu 0,20% og vegna
uppgreiðsluáhættu 0,50%. 

Íbúðalánasjóður hefur því í kjölfar útboðs á íbúðabréfum ákveðið að lækka
útlánavexti sjóðsins sem hér segir:  Útlánavextir íbúðalána með
uppgreiðsluákvæði verða 4,60% og 5,10% á íbúðalán án uppgreiðsluákvæðis.  Hin
nýja vaxtaákvörðun tekur gildi í dag, 18. júní 2009.