2017-02-06 10:00:00 CET

2017-02-06 10:00:00 CET


REGLAMENTUOJAMA INFORMACIJA

Islandų
Sjóvá-Almennar tryggingar hf - Breytingar á eigin hlutum félags

Reglubundin tilkynning Sjóvá um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun



Í viku 5 keypti Sjóvá-Almennar tryggingar hf. (Sjóvá) 3.057.0198 eigin hluti að
kaupverði 50.478.514 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir: 

Dagsetning      Tími  Keyptir hlutir  Viðskiptaverð (gengi)  Kaupverð (kr.)
---------------------------------------------------------------------------
---------------------------------------------------------------------------
 30.1.2017  10:15:37       1.000.000                  16,65      16.650.000
 31.1.2017  13:32:20          19.066                  16,60         316.496
---------------------------------------------------------------------------
 01.2.2017  09:30:03       1.000.000                  16,50      16.500.000
---------------------------------------------------------------------------
 01.2.2017  09:30:09       1.000.000                  16,40      16.400.000
---------------------------------------------------------------------------
 01.2.2017  13:26:25          38.132                  16,05         612.019
---------------------------------------------------------------------------
Samtals                    3.057.198                             50.478.514
---------------------------------------------------------------------------



Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun
félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 3. október 2016. 

Sjóvá átti 67.133.572 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum
70.190.770 eigin hluti eða sem nemur 4,49% af útgefnum hlutum í félaginu. 

Sjóvá hefur keypt samtals 44.892.365 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem
nemur 2,87% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra
655.600.204 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 130.945.271
hlutum eða sem nemur 8,38% af útgefnum hlutum í félaginu, en þó má
heildarkaupverð ekki vera hærra en 1.700.000.000 kr. Endurkaupaáætlunin er í
gildi fram að aðalfundi félagsins 2017, en þó aldrei lengur en til 11. mars
2017, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma. 

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um
hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og
markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið „Viðskipti með eigin bréf í
endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga.“ 



Nánari upplýsingar veitir:

Hermann Björnsson, forstjóri s. 440-2000