2008-09-15 11:27:14 CEST

2008-09-15 11:28:14 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Hf. Eimskipafélag Íslands - Fyrirtækjafréttir

- YFIRLÝSING frá stjórn HF. Eimskipafélags Íslands


Vegna umfjöllunar um málefni Hf. Eimskipafélags Íslands að undanförnu vill
stjórn félagsins koma eftirfarandi á framfæri. 

Nú þegar er á vegum stjórnar rannsókn á tiltekum atriðum sem tengjast rekstri
félagsins frá fyrri tíð. Fyrr en niðurstaða liggur fyrir mun félagið ekki
fjalla um þau atriði með opinberum hætti. 

Það er rétt sem fram hefur komið að fyrrverandi forstjóri hefur höfðað mál á
hendur félaginu vegna krafna hans um starfslokagreiðslur. Félagið stöðvaði
allar greiðslur til fyrrum forstjóra í maí sl. Á meðan málefnið er til
umfjöllunar hjá dómstólum mun félagið ekki tjá sig um það.