|
|||
2010-02-19 15:45:11 CET 2010-02-19 15:46:11 CET REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirNiðurstaða í útboði ríkisbréfa RIKB 11 0722 og RIKB 25 0612Útboð á ríkisbréfum í flokki RIKB 11 0722 og RIKB 25 0612 fór fram hjá Lánamálum ríkisins kl. 14:00 í dag. Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð buðust bjóðendum á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið. Helstu niðurstöður útboðsins voru þessar: RIKB 11 0722: Alls bárust 14 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 11.755 m.kr. að nafnverði. Tilboðum var tekið fyrir 8.755 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 101,060 (7,13% ávöxtunarkröfu). RIKB 25 0612: Alls bárust 55 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 17.624 m.kr. að nafnverði. Tilboðum var tekið fyrir 1.538 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 103,305 (7,62% ávöxtunarkröfu). Ennfremur býðst aðalmiðlurum að kaupa 10% af nafnverði þess sem selt var í útboðinu á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 þriðjudaginn 23. febrúar. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur fyrir þessi viðskipti er 24. febrúar 2010. |
|||
|