2016-11-17 17:11:01 CET

2016-11-17 17:11:01 CET


BIRTINGARSKYLDAR UPPLÝSNINGAR

Íslenska
Hagar hf. - Fyrirtækjafréttir

Hagar hf. hafa undirritað kaupsamning um kaup á öllu hlutafé í Lyfju hf.


Hagar hf. og Lindarhvoll ehf., f.h. Ríkissjóðs Íslands, hafa undirritað
kaupsamning um kaup á öllum hlutum í Lyfju hf. Var kaupsamningur undirritaður í
kjölfar viðræðna um tilboð Haga hf. í opnu söluferli sem Fyrirtækjaráðgjöf
Virðingar hf. hefur annast fyrir hönd seljanda. Ráðgjafi kaupanda var Arctica
Finance. 

Lyfja hf. samanstendur af móðurfélaginu Lyfju hf. ásamt dótturfélögunum Heilsu
ehf. og Mengi ehf. Lyfja hf. rekur samtals 39 apótek, útibú og verslanir, auk
lyfjaskömmtunar, um land allt undir merkjum Lyfju, Apóteksins og Heilsuhússins.
 Heildarvelta Lyfju hf. var 9 milljarðar kr. á árinu 2015. 

Heildarverðmæti Lyfju hf. við gerð kaupsamnings er um 6,7 milljarðar króna. 
Verðmat Haga hf. byggir á ársreikningum félagsins undanfarin ár og rauntölum
rekstrar fyrir fyrstu 9 mánuði ársins 2016. 

Kaupsamningurinn er undirritaður með fyrirvara um niðurstöður
áreiðanleikakönnunar og samþykki Samkeppniseftirlitsins. Gangi þeir fyrirvarar
eftir má gera ráð fyrir að gengið verði frá viðskiptunum fyrir 1. júlí 2017. 



Nánari upplýsingar veitir Aðalheiður Fritzdóttir í netfangi heida@hagar.is