|
|||
2019-06-14 17:37:01 CEST 2019-06-14 17:37:17 CEST REGULATED INFORMATION Reitir fasteignafélag hf. - InnherjaupplýsingarReitir selja Skútuvog 8Reitir hafa undirritað kaupsamning um sölu á eigninni Skútuvogur 8 í Reykjavík, samtals 2011,9 fm., til Höldurs ehf. Söluverð fasteignarinnar er 620 milljónir kr. og greiðist með reiðufé. Salan mun ekki hafa áhrif á áætlaðan rekstrarhagnað Reita á árinu 2019 þar sem eignin verður afhent í lok ársins. Síðustu ár hefur rekstrarhagnaður eignarinnar á ársgrundvelli verið um 20 milljónir kr. en áætlanir gerðu ráð fyrir þróun og uppbyggingu á lóðinni. Fyrirvari er gerður af hálfu kaupanda um fjármögnun kaupanna. Nánari upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416. |
|||
|