2017-10-05 20:07:24 CEST

2017-10-05 20:07:24 CEST


REGLERAD INFORMATION

Isländska
Lýsing hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Lýsing hf. lýkur skuldabréfaútboði


Lýsing hf. hefur lokið skuldabréfaútboði í skuldabréfaflokkunum LYSING 16 1 og
LYSING 17 1. Alls bárust tilboð að nafnvirði 1.530 m.kr.

Alls bárust tilboð upp á 180 m.kr. að nafnvirði í óverðtryggða flokkinn LYSING
16 1 og var öllum tilboðum tekið á hreina verðinu 100,00. Heildarstærð flokksins
eftir útboðið er 3.200.000.000 kr. að nafnvirði.

Alls bárust tilboð upp á 1.350 m.kr. að nafnvirði í verðtryggða flokkinn LYSING
17 1 og var öllum tilboðum tekið á hreina verðinu 100,32 sem samsvarar 3,85%
ávöxtunarkröfu. Heildarstærð flokksins eftir útboðið er 4.810.000.000 kr. að
nafnvirði.

LYSING 16 1 og LYSING 17 1 eru skuldabréfaflokkar sem tryggðir eru með veði í
útlánum og fjármögnunarsamningum Lýsingar. Útgáfudagur og gjalddagi áskrifta er
miðvikudagur 11. október 2017. Óskað verður eftir því að skuldabréfin verði
tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland þann dag.

Markaðsviðskipti Arctica Finance höfðu umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna.

Nánari upplýsingar veita:

Daði Kristjánsson, markaðsviðskiptum Arctica Finance hf., dadi@arctica.is, s:
840 4145
Arnar Geir Sæmundsson, markaðsviðskiptum Arctica Finance hf., arnar@arctica.is,
s: 896 6566
Sighvatur Sigfússon, fjármálastjóri Lýsingar hf., sighvatur@lysing.is, s:
540 1700


[]