2014-06-06 11:31:27 CEST

2014-06-06 11:32:28 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Icelandair Group hf. - Fyrirtækjafréttir

Flutningatölur maí 2014


Í maí flutti félagið 219 þúsund farþega í millilandaflugi og voru þeir 14%
fleiri en í maí á síðasta ári. Framboðsaukning  í sætiskílómetrum nam 18%.
Sætanýting var 77,1% og dróst saman um 1,6 prósentustig á milli ára. Fella
þurfti niður 92 flug og breyta um 12 þúsund bókunum vegna aðgerða flugmanna í
mánuðinum. 

Farþegar í innanlandsflugi og Grænlandsflugi voru um 24 þúsund í maí sem er
fækkun um 5% á milli ára.  Framboð félagsins í maí var dregið saman um 5%
samanborið við fyrra ár. Sætanýting nam 70,8% og dróst saman um 0,7
prósentustig á milli ára. Seldum blokktímum í leiguflugi fækkaði um 38% á milli
ára.  Fraktflutningar í áætlunarflugi drógust saman um 5% frá því á síðasta
ári, má rekja það til aðgerða flugmanna. Seldum gistinóttum á hótelum félagsins
fjölgaði um 12% miðað við maí 2013. Herbergjanýting var 80,1% en hún nam 72,1%
í maí í fyrra. 



MILLILANDAFLUG       MAÍ 14   MAÍ 13      BR. (%)   ÁTÞ 14   ÁTÞ 13      BR. (%)
--------------------------------------------------------------------------------
Fjöldi farþega      218.743  192.434          14%  794.917  698.510          14%
Sætanýting            77,1%    78,7%  -1,6 %-stig    76,2%    75,8%   0,4 %-stig
Framboðnir            849,1    717,3          18%  3.085,9  2.650,6          16%
 sætiskm.                                                                       
 (ASK'000.000)                                                                  
INNANLANDSFLUG OG    MAÍ 14   MAÍ 13      BR. (%)   ÁTÞ 14   ÁTÞ 13      BR. (%)
 GRÆNLANDSFLUG                                                                  
--------------------------------------------------------------------------------
Fjöldi farþega       23.909   25.184          -5%  111.450  121.260          -8%
Sætanýting            70,8%    70,1%   0,7 %-stig    70,3%    70,4%  -0,1 %-stig
Framboðnir             10,7     11,3          -5%     50,8     55,0          -8%
 sætiskm.                                                                       
 (ASK'000.000)                                                                  
LEIGUFLUG            MAÍ 14   MAÍ 13      BR. (%)   ÁTÞ 14   ÁTÞ 13      BR. (%)
--------------------------------------------------------------------------------
Flugvélanýting        88,9%   100,0%        -11,1    97,9%    87,1%  10,8 %-stig
                                           %-stig                               
Seldir blokktímar     1.486    2.400         -38%    9.067   12.009         -25%
FRAKTFLUTNINGAR      MAÍ 14   MAÍ 13      BR. (%)   ÁTÞ 14   ÁTÞ 13      BR. (%)
--------------------------------------------------------------------------------
Framboðnir tonnkm.   19.471   17.418          12%   78.662   72.231           9%
 (ATK´000)                                                                      
Seldir tonnkm.        8.460    8.950          -5%   40.974   39.074           5%
 (FTK´000)                                                                      
HÓTEL                MAÍ 14   MAÍ 13      BR. (%)   ÁTÞ 14   ÁTÞ 13      BR. (%)
--------------------------------------------------------------------------------
Framboðnar           23.485   23.264           1%  112.224  112.064           0%
 gistinætur                                                                     
Seldar gistinætur    18.817   16.775          12%   78.965   73.514           7%
Herbergjanýting       80,1%    72,1%   8,0 %-stig    70,4%    65,6%   4,8 %-stig



Nánari upplýsingar veita:

Bogi Nils Bogason framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group s: 665-8801
Íris Hulda Þórisdóttir forstöðumaður fjárfestatengsla Icelandair Group s:
840-7010