2011-03-08 16:47:04 CET

2011-03-08 16:48:05 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Útboð ríkisvíxla RIKV 11 0615 og RIKV 11 0915



Föstudaginn 11. mars kl: 11:00 fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á
ríkisvíxlum í 
flokkunum RIKV 11 0615 og RIKV 11 0915 sem eru með gjalddaga 15. júní og 15
september 
2011.


Lánamál ríkisins áskilja sér rétt til að samþykkja öll tilboð sem berast, að
hluta eða hafna þeim 
öllum. Einungis aðalmiðlurum ríkisverðbréfa er heimilt að gera tilboð í
útboðinu, en þeir annast 
einnig tilboðsgerð fyrir fjárfesta. Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna
að nafnvirði. 


Útboðinu verður þannig háttað að öll samþykkt tilboð bjóðast aðalmiðlurum á
sama verði. 
Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ræður söluverðinu. Að öðru leyti
er vísað í 
útboðsskilmála sem fylgja þessari frétt.


Greiðslu- og uppgjörsdagur er þriðjudagur 15. mars 2011.


Ofangreindir flokkar verða skráðir í NASDAQ OMX á Íslandi miðvikudaginn 16.
mars 2011.