|
|||
2015-02-09 17:37:15 CET 2015-02-09 17:37:57 CET REGULATED INFORMATION Íslandsbanki hf. - FyrirtækjafréttirIslandsbanki hf. : Íslandsbanki hf. gefur út ný skuldabréf að fjárhæð 300 milljón sænskar krónur til fjögurra áraÍslandsbanki hefur gefið út skuldabréf að fjárhæð 300 milljón sænskar krónur (4,7 milljarðar króna). Skuldabréfið sem er til fjögurra ára ber fljótandi vexti, 310 punkta ofan á þriggja mánaða Stibor. Umframeftirspurn var eftir bréfunum, en kaupendur voru fjárfestar frá Svíþjóð, Noregi og meginlandi Evrópu. Stefnt er að því að skrá skuldabréfin í Kauphöllina á Írlandi þann 13. febrúar. Útgáfan er gefin út undir Global Medium Term Notes (GMTN) útgáfuramma bankans.Grunnlýsingu GMTN rammans ásamt viðaukum má finna á vefsíðu fjárfestatengsla https://www.islandsbanki.is/um-islandsbanka/fjarfestatengsl/ Umsjónaraðili útboðsins var Pareto Securities AB í Stokkhólmi. Nánari upplýsingar veita: * Fjárfestatengill - Guðbjörg Birna Björnsdóttir, ir@islandsbanki.is og í síma 440 4752. * Upplýsingafulltrúi - Guðný Helga Herbertsdóttir, pr@islandsbanki.is og í síma 440 3678. [HUG#1892971] |
|||
|