|
|||
2014-05-30 18:00:13 CEST 2014-05-30 18:00:37 CEST REGULATED INFORMATION FAST-1 slhf. - FyrirtækjafréttirBreyting á orðalagi í fjárfestingareglum FAST-1 slhf.Hluthafar í FAST-1 slhf. hafa samþykkt orðalagsbreytingu á fjárfestingareglum félagsins. Grein 5.6.1. í hluthafasamkomulaginu hljóðar svo fyrir breytingu:"Leigutaki umræddrar fasteignar skal vera í flokki eftirtalinna aðila: i) ríkissjóður, ii) stofnanir hins opinbera, iii) sveitarfélög, eða iv) traustur aðili (með traustum aðila er átt við stofnun eða félag þar sem greining á rekstri þess hefur farið fram og niðurstaða slíkrar greiningar sýnir fram á að reglubundin starfsemi sé líkleg til þess að standa undir öllum skuldbindingum út leigutímann). Eftir breytingu hljóðar greinin svo:"Leigutaki umræddrar fasteignar skal vera í flokki eftirtalinna aðila: i) ríkissjóður, ii) stofnanir hins opinbera, iii) sveitarfélög, eða iv) traustur aðili (með traustum aðila er átt við stofnun eða félag þar sem greining á rekstri þess hefur farið fram og niðurstaða slíkrar greiningar sýnir fram á að reglubundin starfsemi sé líkleg til þess að standa undir öllum skuldbindingum út leigutímann). Þegar um fjárfestingu er að ræða þar sem fleiri en einn leigutaki er til staðar, skulu hið minnsta 85% leigutekna koma frá aðilum sem uppfylla ofangreind skilyrði. Frekari upplýsingar veitir Haukur Skúlason, stjórnarformaður FAST-1 slhf. í síma 844 4778 eða í gegnum netfangið haukur@islandssjodir.is [HUG#1789699] |
|||
|