|
|||
2022-01-24 22:19:30 CET 2022-01-24 22:19:30 CET REGULATED INFORMATION Reitir fasteignafélag hf. - Boðun hluthafafundarTilnefningarnefnd Reita fasteignafélags hf. auglýsir eftir tilnefningum eða framboðum til stjórnarTilnefningarnefnd Reita auglýsir eftir tilnefningum eða framboðum til stjórnar félagsins vegna aðalfundar sem haldinn verður 11. mars 2022. Í því skyni að fá umfjöllun tilnefningarnefndar um tilnefningar eða framboð til stjórnar er áhugasömum bent á að fylla út form sem finna má vefsíðu félagsins, www.reitir.is, og senda nefndinni eigi síðar en 3. febrúar 2022 á netfangið tilnefningarnefnd@reitir.is. Farið verður með allar persónuupplýsingar sem tilnefningarnefnd berast sem trúnaðarmál og í samræmi við reglur um persónuvernd. Tillaga nefndarinnar um val á stjórnarmönnum verður birt samhliða boðun aðalfundar eða í síðasta lagi þremur vikum fyrir aðalfund. Önnur framboð verða birt sex sólarhringum fyrir aðalfund. Einstaklingur sem nefndin gerir ekki tillögu um sem stjórnarmann í félaginu getur ávallt gefið kost á sér til stjórnarsetu með því að skila inn formi framboðs til stjórnar innan hins almenna framboðsfrests samkvæmt samþykktum Reita, þ.e. sjö sólarhringum fyrir aðalfund. Form vegna umfjöllunar í tilnefningarnefnd eða framboðs til stjórnar má finna á vefsíðu félagsins, www.reitir.is. Tilnefningarnefnd Reita fasteignafélags hf. |
|||
|