|
|||
2009-09-17 12:28:14 CEST 2009-09-17 12:29:13 CEST REGULATED INFORMATION Verðbréfun hf. - Ársreikningur- Ársreikningur 2008Þann 16. september 2009 var stjórnarfundur Verðbréfunar hf. haldinn að Austurstræti 11, 101 Reykjavík, þar sem ársreikningur félagsins fyrir árið 2008 var lagður fram og samþykktur. Lykiltölur úr árshlutareikningnum (í þús.kr.): Sjá viðhengi. Umfjöllun um ársreikninginn og ákvarðanir stjórnar og hluthafa Stjórn og hluthafar samþykktu ársreikning Verðbréfunar fyrir 2008 á fundi sínum 16.09.2009. Starfsemi Verðbréfunar hf. var í lágmarki 2008. Umtalsverðar breytingar urðu á fasteignamarkaði 2008 og hefur dregið verulega úr uppgreiðslu á lánum félagsins. Lánasafn Verðbréfunar hefur lækkað frá 31. desember 2007 um 8,8%. Útdráttur skuldabréfa hefur verið í jafnvægi á tímabilinu og verið dregið út úr safnbréfaflokkum í samræmi við inngreiðslur lána. Rekstrarhagnaður Verðbréfunar hf. á árinu 2008 var neikvæður um 21,16 milljónir króna fyrir og eftir útreikning skatta. Heildareignir félagsins hafa lækkað um 43 miljónir króna frá 31. desember 2007 eða um 10,2%. Eigið fé félagsins lækkaði á sama tíma um 21,16 milljónir króna frá fyrra ári. Breyting á eignarhaldi Þann 8.10.2008 var hlutur Landsbanka Íslands hf. seldur NBI hf. Framtíð félagsins Stjórn Verðbréfunar hf. samþykkti á fundi sínum þann 16. september 2009 samkomulag við NBI hf. um kaup á útistandandi skuldabréfum Verðbréfunar hf. á uppgreiðsluvirði safnbréfanna. Leitast verður eftir samþykki kröfuhafa safnbréfanna og er stefnt að uppgjöri þann 1.12.2009. Upplýsingar um ársreikning Verðbréfunar gefur Haukur Agnarsson, framkvæmdastjóri Verðbréfunar í síma 410 7735 |
|||
|