2012-10-05 13:45:00 CEST

2012-10-05 13:45:02 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Niðurstaða í útboði óverðtryggðra ríkisbréfa RIKB 14 0314


Útboð á óverðtryggðum ríkisbréfum, RIKB 14 0314 fór fram hjá Lánamálum ríkisins
kl. 11:00 í dag. Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð buðust á
sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið. 



                    Helstu niðurstöður útboðsins voru þessar:

RIKB 14 0314:

Alls bárust 14 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 5.740 m.kr. að nafnverði.
Tveimur tilboðum var tekið fyrir 2.010 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 101,250
(3,82% ávöxtunarkröfu). 

Ennfremur býðst aðalmiðlurum að kaupa 10% af nafnverði þess sem selt var í
útboðinu á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 þriðjudaginn 9.
október. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast
kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur fyrir þessi
viðskipti er 10. október 2012.