2012-08-29 10:55:39 CEST

2012-08-29 10:56:43 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Íslandssjóðir hf. - Ársreikningur

Íslandssjóðir – Árshlutauppgjör 2012


Stjórn Íslandssjóða hf., sem rekur verðbréfasjóði, fjárfestingarsjóði og
fagfjárfestasjóði, hefur staðfest árshlutareikning félagsins fyrir fyrstu sex
mánuði ársins 2012. 

Afkoma Íslandssjóða hf. fyrstu sex mánuði ársins 2012

  -- Árshlutareikningi félagsins er skipt í tvo hluta, A-hluta sem inniheldur
     árshlutareikning Íslandssjóða, þ.e. rekstrarfélagsins, og B-hluta sem
     inniheldur árshlutareikning verðbréfa- og fjárfestingarsjóða. Þessi
     framsetning á reikningnum er í samræmi við reglur um reikningsskil
     rekstrarfélaga verðbréfasjóða sem settar eru af Fjármálaeftirlitinu.
  -- Hagnaður rekstrarfélagsins eftir skatta fyrstu sex mánuði ársins 2012 er
     127 m.kr. samanborið við 98 m.kr. fyrir sama tímabil árið áður.
  -- Hreinar rekstrartekjur námu 568 m.kr. samanborið við 541 m.kr. fyrir sama
     tímabil árið áður, jukust um 5%.
  -- Rekstrargjöld námu 409 m.kr. samanborið við 419 m.kr. fyrir sama tímabil
     árið áður og lækkuðu um 2,4%.
  -- Heildareignir félagsins 30. júní 2012 námu 3.166 m.kr. en voru 2.854 m.kr.
     í árslok 2011.
  -- Eigið fé 30. júní 2012 nam 1.794 m.kr. en var 1.741 m.kr. í árslok 2011.
  -- Eiginfjárhlutfall félagsins, sem reiknað er samkvæmt lögum um
     fjármálafyrirtæki, var 160,5% í lok júní, en þetta hlutfall má ekki vera
     lægra en 8%.

  -- Í lok júní 2012 voru 19 sjóðir í rekstri hjá félaginu og nam hrein eign
     þeirra 110.100 milljónum króna samanborið við 112.890 m.kr. í lok árs 2011.
     Þar af eru 15 verðbréfasjóðir með hreina eign að upphæð 100.972 milljónir
     króna og 4 fjárfestingarsjóðir með hreina eign að upphæð 9.128 milljónir
     króna. Einn sjóður sem skráður er í Lúxemborg er í stýringu félagsins.
  -- Á árinu tóku Íslandssjóðir yfir rekstur og stýringu verðbréfa- og
     fjárfestingarsjóða Rekstrarfélags Byrs. Um var að ræða sjóðina
     Skuldabréfasjóðinn, Alþjóða virðissjóðinn og Alþjóða vaxtarsjóðinn, auk
     Fyrirtækjasjóðsins sem er í slitaferli. Við þessa yfirtöku jukust eignir í
     stýringu hjá Íslandssjóðum um 2.292 milljónir. Yfirtakan á rekstri sjóðanna
     var samþykkt af Fjármálaeftirlitinu þann 14. maí og átti yfirfærslan á
     eignum sjóðanna sér stað þann 31. maí.
  -- Í lok júní voru framkvæmdar lokaútgreiðslur úr sjóðunum 9.3 -
     Peningamarkaðsbréf USD og 9.1 - Peningamarkaðsbréf EUR og hefur sjóðunum
     þar með verið formlega slitið.
  -- Árshlutareikningurinn hefur verið kannaður af Deloitte ehf., en við könnun
     kom ekkert fram sem bendir til annars en að reikningurinn gefi glögga mynd
     af afkomu félagsins og sjóðanna á fyrstu 6 mánuðum ársins 2012.
  -- Í lok júní 2012 störfuðu 15 starfsmenn hjá Íslandssjóðum. Framkvæmdarstjóri
     félagsins er Agla Elísabet Hendriksdóttir.

Lykiltölur í m.kr.:



                        6 mán. 2012  6 mán. 2011
------------------------------------------------
Hreinar rekstrartekjur          568          541
------------------------------------------------
Rekstrargjöld                   409          419
------------------------------------------------
Hagnaður fyrir skatta           159          123
------------------------------------------------
Hagnaður eftir skatta           127           98
------------------------------------------------
Eigið fé                      1.794        1.593
------------------------------------------------



Afkoma verðbréfasjóða Íslandssjóða fyrstu sex mánuði ársins

  -- Hagnaður verðbréfasjóða Íslandssjóða færður á hlutdeildarskírteini á fyrstu
     sex mánuðum ársins nam 2.136 m.kr. samanborið við 2.120 m.kr. hagnað fyrstu
     sex mánuði ársins 2011.
  -- Hrein eign verðbréfasjóða Íslandssjóða nam 100.972 m.kr. samanborið við
     106.009  m.kr. í árslok 2011.



Lykiltölur í m.kr.



                Ríkisskuldabréf  Úrvalsvísitala  Löng             Heimssafn -   
                 - Sjóður 5       -Sjóður 6       ríkissk.br. -    Sjóður 12    
                                                  Sjóður 7                      
--------------------------------------------------------------------------------
Hagnaður (tap)              439              33              942              38
 tímabilsins                                                                    
--------------------------------------------------------------------------------
Hrein eign í             34.198             520           41.334             659
 lok tímabils                                                                   
--------------------------------------------------------------------------------



                         Ríkissafn  Veltusaf  Eignasafn  Eignasafn - Ríki og    
                                    n                     sjóðir                
--------------------------------------------------------------------------------
Hagnaður (tap)                 206       175         12                        4
 tímabilsins                                                                    
--------------------------------------------------------------------------------
Hrein eign í lok            11.513     7.530        467                      521
 tímabils                                                                       
--------------------------------------------------------------------------------



                     Lengri skuldabréfa-    Alþjóða            Alþjóða          
                      sjóðurinn              virðissjóðurinn    vaxtarsjóðurinn 
--------------------------------------------------------------------------------
Hagnaður (tap)                           1                (5)                (3)
 tímabilsins                                                                    
--------------------------------------------------------------------------------
Hrein eign í lok                     1.820                106                 76
 tímabils                                                                       
--------------------------------------------------------------------------------



                     Sjóður    Sjóður    Sjóður     Sjóður     Samtals          
                      1A        1B        11A        11B        verðbréfasjóðir 
--------------------------------------------------------------------------------
Hagnaður (tap)            121       188        (5)        (9)              2.136
 tímabilsins                                                                    
--------------------------------------------------------------------------------
Hrein eign í lok          788     1.220         77        143            100.972
 tímabils                                                                       
--------------------------------------------------------------------------------





Afkoma fjárfestingarsjóða Íslandssjóða fyrstu sex mánuði ársins

  -- Hagnaður fjárfestingarsjóða Íslandssjóða færður á hlutdeildarskírteini
     fyrstu sex mánuðina nam 586 m.kr. samanborið við 19 m.kr. hagnað fyrstu sex
     mánuðina 2011.
  -- Hrein eign fjárfestingarsjóða Íslandssjóða nam 9.128 m.kr. samanborið við
     6.881 m.kr. í árslok 2011.



Lykiltölur í m.kr.



                        Fókus -        Úrval innl. hlbr. -        Skuldabréfasaf
                         Vextir         Sjóður 10                 n             
--------------------------------------------------------------------------------
Hagnaður (tap)                    100                        328              51
 tímabilsins                                                                    
--------------------------------------------------------------------------------
Hrein eign í lok                3.897                      3.228           1.972
 tímabils                                                                       
--------------------------------------------------------------------------------



                     Fyrirtækjas  Sjóður 9.1   Sjóður 9.3   Samtals             
                     jóður         EUR          USD          fjárfestingarsjóðir
--------------------------------------------------------------------------------
Hagnaður (tap)                 3          (2)          105                   586
 tímabilsins                                                                    
--------------------------------------------------------------------------------
Hrein eign í lok              31            0            0                 9.128
 tímabils                                                                       
--------------------------------------------------------------------------------



Árshlutareikningur félagsins mun liggja frammi hjá félaginu í húsnæði
Íslandsbanka Kirkjusandi, 4. hæð og á www.islandssjodir.is frá og með 4.
september 2012. 



Nánari upplýsingar um árshlutareikning Íslandssjóða hf. veitir:

Agla Elísabet Hendriksdóttir, fram­kvæmda­stjóri félagsins, í síma 440-4917.