2013-02-18 09:44:26 CET

2013-02-18 09:44:45 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Fjarskipti hf. - Fyrirtækjafréttir

Vodafone stefnir að gerð samnings um not af nýjum sæstreng


Vodafone (Fjarskipti hf.) og Emerald Networks hafa ákveðið að semja um afnot
Vodafone af gagnaflutningsstreng sem ráðgert er að leggja til Íslands.
Emerald Networks hefur á undanförnum misserum undirbúið lagningu sæstrengs frá
Bandaríkjunum til Evrópu og lagningu hliðarleggs til Íslands.
Fyrirtækið hefur boðið Vodafone aðgang að strengnum og stefna málsaðilar að
undirritun samnings þar um innan 45 daga. Frekari upplýsingar verða veittar
þegar niðurstaðan liggur fyrir.

[HUG#1678925]