|
|||
2007-11-28 10:04:53 CET 2007-11-28 10:04:53 CET REGLAMENTUOJAMA INFORMACIJA Marel Food Systems hf. - Fyrirtækjafréttir- Samningur um kaup á Stork Food SystemsMarel Food Systems hf. (Marel) tilkynnir að félagið hefur náð samkomulagi við Stork N.V. um kaup á Stork Food Systems (SFS). Kaupverðið er 415 miljónir evra. Með kaupunum tvöfaldast velta og umfang Marel auk þess sem grundvöllur fyrir áframhaldandi innri vöxt og arðsemi hefur verið styrktur. Kaupin á SFS er mikilvægt skref í fyrirætlun Marel um að verða meðal fremstu framleiðenda í heiminum á hátæknibúnaði fyrir matvælavinnslu. Engin skörun er á starfsemi Marel og SFS eða vörulínum félaganna. Nánar um yfirtökuna • Kaupin eru gerð með fyrirvara um: o Að fyrirhugað yfirtökutilboð London Acquisition N.V. um að kaupa alla hluti í Stork N.V. verði skilyrðislaust; o Umsögn Stork Works Council; o Samþykki samkeppnisyfirvalda. • Þangað til öllum formlegum skilyrðum samningsins er fullnægt heldur hvort fyrirtæki um sig áfram sjálfstæðum og óbreyttum rekstri. • Kaupverð er 415 miljónir evra og nemur kostnaður vegna kaupanna um 20 miljónum evra. • Marel hefur selt 20% hlut sinn í LME Eignarhaldsfélagi ehf. á verði sem endurspeglar tilboðsverð í fyrirhuguðu yfirtökutilboði upp á 48,4 evrur á hlut. • Fjármögnun kaupanna eru að fullu tryggð með sölu hlutabréfa í LME Eignarhaldsfélagi ehf, útgáfu hlutabréfa, sem Landsbanki hefur sölutryggt, og langtíma lánsfjármögnun. Fyrirtækjaráðgjöf Landsbanka Íslands hf. var ráðgjafi Marel og Allen & Overy í Amsterdam veitti lögfræðilega ráðgjöf um kaup á SFS. Um Stork Food Systems Höfuðstöðvar SFS eru í Hollandi, en félagið er með framleiðslu í Hollandi, Frakklandi, Bandaríkjunum, Spáni og í Brasilíu. Alls starfa um 1.875 starfsmenn hjá félaginu. SFS hefur einbeitt sér að þróun hátæknibúnaðar fyrir vinnslu á fuglakjöti og öðru kjöti, auk frekari vinnslu matvæla. Á síðasta ári varð Stork Food and Dairy Systems (SFDS) hluti af SFS. SFDS framleiðir vörur til nota við vinnslu mjólkurafurða, safa, annarra matvæla og lyfjavara. Áætluð heildarvelta SFS árið 2007 er 380 miljónir evra, þar af er um 310 miljónir evra frá kjarnastarfsemi þess í fuglakjöti og annarri kjötframleiðslu og 70 miljónir frá SFDS. Hagnaður þessa árs fyrir fjármagnsliði (EBITDA) er áætlaður 31 miljón evra. Af þessu er 41 miljón evra hagnaður af kjarnastarfsemi, en 4 miljóna evra tap var á SFDS auk 6 miljóna evra kostnaðar vegna endurskipulagningar. Á síðustu fjórum árum hefur innri vöxtur kjarnastarfseminnar verið 14% og byggðist hann á öflugri vöruþróun og aukinni áherslu á nýmarkaðslönd. Framlegð (EBIT) hefur verið að meðaltali 10%. SFS hefur starfað með Marel með góðum árangri á undanförnum níu árum og þróað sérsniðnar lausnir í vinnslu á fuglakjöti. SFDS hefur sterkt vöruframboð í búnaði fyrir framleiðslu á mjólkurafurðum, safa og lyfjavinnslu sem vex hvað hraðast. Eftir sameiningu SFS og SFDS var tilkynnt um fyrirhugaða endurskipulagningu á rekstri félagsins þann 31. október 2007, en þess er vænst að starfsemi SFDS skili hagnaði árið 2008. Ávinningur af yfirtökunni Helsti ávinningur fyrir Marel og SFS er m.a.: • Í sameiningu mynda Marel og SFS rekstrareiningu sem hefur stærð og burði til að fara inn á nýja markaði í Mið- og Austur-Evrópu, Asíu og Suður-Ameríku, þar sem áætlaður árlegur vöxtur er yfir 7%. • Stærri eining getur: o Skapað betra jafnvægi milli prótíntegunda og þar með lækkað rekstraráhættu; o Nýtt sér stærðarhagkvæmni í framleiðslu og aukið framleiðslugetu, einkum í nýmarkaðslöndum; o Beitt styrk sínum við innkaup á íhlutum, málmum og rafeindabúnaði. • Marel og SFS hafa unnið saman við þróun og framleiðslu á vinnslulínum fyrir fuglakjöt. Þeim hefur tekist að sameina styrkleika SFS í vélahönnun við nýsköpun Marel í raftækni og á hugbúnaðarsviðinu. Fyrirtækin munu byggja á farsælli samvinnu sinni til að samþætta rekstur sinn og skapa virði fyrir viðskiptavini. Félagsleg atriði Kaupin munu ekki hafa neikvæð áhrif á starfsfólk SFS eða starfsskilyrði þeirra. „Í ársbyrjun 2006 settum við fram metnaðarfull vaxtarmarkmið til næstu þriggja til fimm ára,“ segir Árni Oddur Þórðarsson, stjórnarformaður Marel Food System. „Á innan við tveimur árum höfum við ráðist í þrjár veigamiklar yfirtökur og að auki fjárfest í verulega í aukinni framleiðslugetu og markaðsstarfi. Áætluð velta næsta árs er um 650 miljónir evra til samanburðar við 129 miljóna evru veltu á árinu 2005. Stjórnendur og starfsfólk hafa unnið hörðum höndum að samþættingu fyrirtækjanna. Marel er nú betur í stakk búið til að sinna alþjóðlegum viðskiptavinum. Áherslan nú er innri vöxtur og aukin verðmætasköpun. Við erum afar þakklát fyrir þann stuðning sem Marel hefur fengið frá fjármálamörkuðum, ekki síst frá breiðum hóp hluthafa..“ „Sterk nýsköpun hjá SFS gerir félagið að óska samstarfsaðila fyrir Marel,“ segir Hörður Arnarson, forstjóri Marel Food Systems. „Árangursrík samvinna okkar sl. áratug hefur skapað virðingu fyrir samstarfsfélögum okkar hjá SFS og sýnt að við getum vaxið og náð árangri saman. Vörulínur félaganna skarast ekki. Við þurfum stærð, stöðuga nýsköpun og fótfestu á mörkuðum um allan heim til að ná árangri í okkar grein þar sem samkeppnin er afar hörð. Þessi kaup styrkja okkur til að fara inn í nýja markaði, t.d. í Asíu, Austur-Evrópu og Suður-Ameríku. Með þessu skrefi opnast tækifæri til að nýta sem best framleiðslugetu okkar og ná tæknilegri hagkvæmni.“ „Það er ánægjulegt fyrir okkur að sameinast Marel,“ segir Theo Hoen, forstjóri Stork Food Systems. „Mark¬mið okkar hefur alltaf verið að bjóða viðskiptavinum leiðandi tæknilausnir sem bæta sam¬keppnis¬forskot þeirra enn frekar og auka virði framleiðslu þeirra. Stöðug nýsköpun hjá Marel og markaðsorðstír fyrirtækisins í framleiðslu hágæðabúnaðar fellur þess vegna alveg að hugmyndafræði SFS. Einnig vil ég benda á það, að Marel og SFS hafa átt farsæla samvinnu í næstum áratug. Af fyrri reynslu okkar að dæma passar fyrirtækjamenning þessara tveggja félaga einstaklega vel saman.“ Kynningarfundur: Marel Food Systems heldur kynningarfund fyrir greinendur og fjárfesta í höfuðstöðvum fyrirtæksins að Austurhrauni 9, Garðabæ, 29. nóvember, kl. 8:30. Frekari upplýsingar fást hjá: Herði Arnarsyni, forstjóra Marel Food Systems, í síma 563 8072. Um Marel Food Systems Marel Food Systems er í fararbroddi á alþjóðavísu í framleiðslu á hátæknilegum matvinnslukerfum. Fyrirtækið útvegar háþróuð kerfi fyrir allar greinar matvælaiðnaðar og eykur þannig gæði og virði fisks, kjötmetis og annarra unninna matvara um allan heim. Nýstárlegar lausnir fyrirtækisins - allt frá einstökum vélum til heilla verkunar- og vinnslustöðva - eru ávallt til hagsbóta fyrir matvælaframleiðendur, smásala og neytendur. Marel Food Systems samanstendur af fjórum rekstrareiningum sem bæta hver aðra upp. Marel ehf. á Íslandi, AEW Delford Systems Ltd í Bretlandi, Carnitech A/S í Danmörku og Scanvægt International A/S í Danmörku. Marel Food Systems starfar í 24 löndum og hefur umboðsmenn og dreifingaraðila í yfir 40 löndum um allan heim. Fyrirtækið fylgir ávallt nýjustu tækni með því að fjárfesta mun meir í rannsóknum og vöruþróun en gengur og gerist í matvælaiðnaðinum. |
|||
|