2014-06-23 10:45:40 CEST

2014-06-23 10:46:41 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Icelandair Group hf. - Fyrirtækjafréttir

Breyting á afkomuspá vegna áhrifa vinnudeilna


Samkvæmt stefnu félagsins um fjárfestatengsl þá birtir félagið í upphafi hvers
árs EBITDA spá og er hún uppfærð eða staðfest í tengslum við birtingu
árshlutareikninga félagsins.  Samkvæmt viðmiðunarreglum félagsins um
innherjaupplýsingar skal birta uppfærða spá  um leið og fyrir liggur að spáin
hafi breyst um meira en 10%.  Þrátt fyrir að það eigi ekki við nú þá telur
félagið, í ljósi aðstæðna, rétt að birta uppfærða EBITDA spá nú þegar
rekstraruppgjör fyrir maí  liggur fyrir. Uppfærð afkomuspá tekur tillit til
uppfærðra rekstrarforsendna og núverandi bókunarstöðu. 

Samkvæmt uppfærðri spá er gert ráð fyrir að EBITDA ársins verði um 138 - 143
milljónir USD, en spáin í upphafi árs var 145 - 150 milljónir USD.  Gert er ráð
fyrir að gengi EUR gagnvart USD verði 1,35 það sem eftir ársins og að verð á
flugvélaeldsneyti verði að meðaltali 1.000 USD per tonn.   Bein áhrif aðgerða
flugstétta á rekstur félagsins eru áætluð um 3,5 milljónir USD.  Þá tekur spáin
tillit til hærri launakostnaðar og lægri tekna en gert var ráð fyrir í
upphaflegri spá, en tekjuspá félagsins lækkaði á milli mánaða sem má rekja til
aðgerða flugstétta.  Í spánni er ekki gert ráð fyrir frekari kostnaði vegna
vinnudeilna á árinu. 



Frekari upplýsingar:

Björgólfur Jóhannsson, forstjóri
bjorgolfur@icelandairgroup.is
896 1455

Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála
bogi@icelandairgroup.is
665 8801