|
|||
![]() |
|||
2017-05-22 16:50:05 CEST 2017-05-22 16:50:05 CEST REGULATED INFORMATION Reitir II ehf. - InnherjaupplýsingarBeiðni til skuldabréfaeigenda um samþykki við afskráningu skuldabréfaflokks LAFL 03 1Með bréfi dagsettu í dag mun Reitir II ehf. fara þess á leit við eigendur skuldabréfa í skuldabréfaflokknum LAFL 03 1 að þeir samþykki fyrirhugaða afskráningu skuldabréfaflokksins úr kauphöll. Fyrirhuguð afskráning er hluti af skipulagsbreytingum í samstæðu Reita fasteignafélags hf., móðurfélags útgefanda, þar sem dótturfélögum samstæðunnar hefur verið fækkað í þeim tilgangi að skerpa áherslur í rekstri og eignarhaldi á fasteignum. Engar aðrar breytingar eru fyrirhugaðar á skuldabréfunum, tryggingum fyrir þeim eða öðru sem þeim tengist. Í bréfinu verður óskað eftir svari við umræddri beiðni fyrir þann 12. júní næstkomandi. Nánari upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson í síma 575 9000 eða 669 4416. |
|||
|