2017-05-23 18:06:19 CEST

2017-05-23 18:06:19 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Nýherji hf. - Breyting á stjórn/framkvæmdastjórn/endurskoðendum

Nýherji hf. – Breytingar á framkvæmdastjórn


Linda Björk Waage hefur verið ráðin framkvæmdastjóri yfir nýju sviði innan
Nýherja, Umsjá, þar sem rekstrarþjónusta og innviðir eru settir undir sama
hatt. 

Linda hefur starfað hjá Nýherja frá árinu 2011 og hefur hún sinnt ýmsum
lykilstörfum, nú síðast sem forstöðumaður þjónustuborðs og UT rekstrar. Linda
lauk MBA gráðu frá Háskólanum í Reykjavík árið 2009 og BA próf í sálfræði frá
Háskóla Íslands árið 1997. 

Í framkvæmdastjórn Nýherja sitja auk Lindu, Finnur Oddsson, forstjóri, Gunnar
Petersen, framkvæmdastjóri Fjármálasviðs, Gunnar Zoëga, framkvæmdastjóri
Viðskiptaframtíðar, Dröfn Guðmundsdóttir, mannauðsstjóri og Emil Gunnar
Einarsson, framkvæmdastjóri Notendalausna. 

Linda tekur formlega sæti í framkvæmdastjórn Nýherja þann 1. júlí nk.



Nánari upplýsingar veita:

Finnur Oddsson - Forstjóri – fo@nyherji.is – S: 862 0310

Gunnar Petersen - Framkvæmdastjóri Fjármálasviðs - gp@nyherji.is – S: 825 9001