|
|||
2009-08-20 21:19:46 CEST 2009-08-20 21:21:19 CEST REGULATED INFORMATION Orkuveita Reykjavíkur - Árshlutareikningur - 6 mán.Árshlutareikningur Orkuveitu Reykjavíkur tímabilið 1.1. til 30.6. 2009Rekstrarhagnaður Orkuveitu Reykjavíkur fyrir fjármagnsliði, skatta og afskriftir, EBITDA, fyrstu sex mánuði ársins 2009 var 5,7 milljarðar króna. Að teknu tilliti til þeirra þátta nemur halli af rekstrinum 10,6 milljörðum króna og ræðst það að mestu af 7% veikingu íslensku krónunnar frá áramótum. Á sama tímabili 2008 varð halli að fjárhæð 16,4 milljarðar króna af rekstrinum. Vaxandi tekjur fyrirtækisins í erlendri mynt gera því kleift að standa undir greiðslum af erlendum lántökum þrátt fyrir miklar gengissveiflur. Árshlutareikningurinn er gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla. Helstu niðurstöður tímabilsins 1.1. til 30.6. 2009 Rekstur Orkuveitu Reykjavíkur var með 10.615 milljóna króna halla fyrstu sex mánuði ársins 2009 samanborið við 16.406 milljóna króna halla fyrir sama tímabil árið áður. Rekstrartekjur tímabilsins námu 11.925 milljónum króna en voru 11.369 milljónir króna fyrir sama tímabil árið áður. Hagnaður fyrirtækisins fyrir fjármagnsliði, skatta og afskriftir, EBITDA, var 5.692 milljónir króna samanborið við 5.816 milljónir króna á sama tímabili árið áður. Fjármagnsliðir voru neikvæðir um 14.132 milljónir króna á tímabilinu, en voru neikvæðir um 22.187 milljónir króna á sama tímabili árið 2008. Heildareignir þann 30. júní 2009 voru 264.438 milljónir króna en voru 259.373 milljónir króna 31. desember 2008. Eigið fé þann 30. júní 2009 var 37.344 milljónir króna en var 48.359 milljónir króna 31. desember 2008. Heildarskuldir fyrirtækisins þann 30. júní 2009 voru 227.094 milljónir króna samanborið við 211.015 milljónir króna í árslok 2008. Eiginfjárhlutfall var 14,1% þann 30. júní 2009 en var 18,6% í árslok 2008. Ýmis mál Alþingi samþykkti á vorþingi 2008 breytingar á ýmsum lögum á orkusviði með gildistöku 1. júlí 2009. Gildistökunni var síðan frestað til 1. janúar 2010. Þessar breytingar fela það meðal annars í sér að skipta þarf fyrirtækinu upp þannig að sérleyfisstarfsemi og samkeppnisstarfsemi séu reknar í aðskildum fyrirtækjum. Hafinn er undirbúningur að þessari skiptingu. Horfur Þrátt fyrir umrót á íslenskum og erlendum fjármálamörkuðum er rekstur Orkuveitu Reykjavíkur traustur. Áfram er unnið að stækkun Hellisheiðarvirkjunar á árinu 2009 og er áformað að taka síðasta áfanga raforkuframleiðslu hennar í notkun á fyrsta ársfjórðungi 2011. Uppbygging annarra virkjana mun taka mið af aðgengi fyrirtækisins að lánsfé til fjárfestinga og þeim lánskjörum sem í boði verða. Vegna óvissu í íslensku efnahagslífi hefur þó dregið úr fjárfestingum í fjárhagsáætlun Orkuveitu Reykjavíkur á árinu 2009 og gripið hefur verið til víðtækra aðhaldsaðgerða í rekstri fyrirtækisins bæði hvað varðar launagreiðslur og annan rekstrarkostnað. Eiginfjárstaða Orkuveitu Reykjavíkur mun á næstu misserum ráðast að miklu leyti af stöðu íslensku krónunnar gagnvart erlendum gjaldmiðlum. Nánari upplýsingar veitir Hjörleifur B. Kvaran, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur, í síma 516-6000. Orkuveita Reykjavíkur - árshlutauppgjör Allar tölur eru í milljónum kr. 1. og 2. 1. og 2. 1 ársfj. 2 ársfj. ársfj. ársfj. 2009 2009 2009 2008 Rekstrarreikningur 1.1-31.3 1.4-30.6 1.1-30.6 1.1-30.6 Rekstrartekjur ........................... 6.541 5.383 11.925 11.369 Rekstrargjöld ............................. (3.206) (3.027) (6.233) (5.553) Rekstrarhagn. f. afskr. (EBITDA) 3.335 2.357 5.692 5.816 Afskriftir .................................... (2.374) (2.327) (4.702) (3.308) Fjármunatekjur og (fjármagnsgj) 703 (14.835) (14.132) (22.187) Áhrif hlutdeildarfélaga ................. 19 13 33 14 (Tap) hagnaður fyrir skatta 1.684 (14.793) (13.109) (19.666) Tekjuskattur .............................. 129 2.365 2.494 3.260 (Tap) hagnaður tímabilsins 1.812 (12.427) (10.615) (16.406) Skipting (taps) hagnaðar Eigendur móðurfyrirtækisins ........ 1.806 (12.415) (10.610) (16.382) Hlutdeild minnihluta .................... 7 (12) (5) (24) (Tap) hagnaður tímabilsins 1.812 (12.427) (10.615) (16.406) Handbært fé frá rekstri 425 2.451 2.876 3.127 Efnahagsreikningur 31.3.2009 30.6.2009 31.12.2008 Fastafjármunir ........................... 242.946 250.993 252.618 Veltufjármunir ............................ 19.613 13.444 6.755 Eignir 262.559 264.438 259.373 Eigið fé ...................................... 49.971 37.344 48.359 Langtímaskuldir og skuldbindingar 194.810 207.176 196.589 Skammtímaskuldir ..................... 17.778 19.918 14.425 Eigið fé og skuldir 262.559 264.438 259.373 Kennitölur Veltufjárhlutfall 1,10 0,67 0,47 Eiginfjárhlutfall 19,0% 14,1% 18,6% |
|||
|